Sumarið 2003

Við Húsavíkurhöfn 13. júlí árið 2003. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Þessi mynd sem nú birtist var tekin þann 13. júlí árið 2003 og sýnir þrjú fley í Húsavíkurhöfn.

Dröfn RE 35 er að koma að landi og utan á Þvergarðinum liggur Björg Jónsdóttir ÞH 321.

Innan á garðinum er verið að landa úr rækjubátnum Baldri Árna ÞH 50.

Öll eru þetta innlend smíði, Dröfn smíðuð á Seyðisfirði, Björg Jónsdóttir á Akureyri og Baldur Árna á Ísafirði.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

3 athugasemdir á “Sumarið 2003

Skildu eftir svar við Hafþór Hreiðarsson Hætta við svar