Auðunn GK 27

21. Auðunn GK 21. Ljósmynd SRR.

Auðunn GK 21 er hér í Húsavíkurhöfn um árið en framköllunarár myndarinnar var 1962.

Auðunn var smíðaður í Noregi árið 1959 fyrir Hlutafélagið Ása h/f í Hafnarfirði og kom til heimahafnar í febráur 1960.

Auðunn var 164 brl. að stærð en báturinn var síðar lengdur og mældist eftir það 200 brl. að stærð.

Í janúarmánuði árið 1972 var Auðunn seldur Hafsteini h/f í Garði sem nefndi hann Hafstein GK 107.

Rúmu ári síðar keypti Sjófang h/f í Reykjavík bátinn og Hafsteinn varð RE 133. Báturinn var endurmældur og mældist þá 176 brl. að stærð.

Vorið 1980 keypti Rafn h/f í Sandgerði bátinn og nefndi Mumma GK 120.

Það var svo árið 1989 sem Jökull h/f á Raufarhöfn keypti bátinn og nefndi Atlanúp ÞH 263.

Ekki stóð sú útgerð lengi en Atlanúpur var úreltur þegar Ásgeir Frímanns ÓF 21 kom í flotann árið 1990.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd