
Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10 er hér í Grindavíkurhöfn og menn eitthvað að vinna í trollinu.
Þorbjörn hf. í Grindavík keypti bátinn frá Vestmannaeyjum árið 1979 og nefndi Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10.
Hrafn Sveinbjarnarson II var yfirbyggður árið 1982 og fór síðan til Danmerkur í breytingar árið 1986 þar sem hann var m.a lengdur um fimm metra.
Árið 1988 er báturinn seldur til Eyrarbakka þar sem hann fékk nafnið Særún ÁR 400.
Upphaflega hét báturinn Helgi Flóventsson ÞH 77 og var smíðaður fyrir Svan h/f á Húsavík í Risör í Noregi árið 1962.
Um bátinn má lesa nánar hér en hans síðasta nafn var Brynjólfur ÁR 3 og fór hann í brotajárn árið 2005.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.