Sylvia Earle

IMO 9872327. Sylvia Earle. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Sylvia Earle kom til Húsavíkur í dag eftir siglingu frá Akureyri. Sylvia Earle var smíðað árið 2022 og er af Ulstein X-BOW gerð. Skipið er smíðað til siglinga við Suðurskautið sem og á norðlægum slóðum. Lengd þess er 104 metrar og breidd 18 metrar og það mælist 8,076 … Halda áfram að lesa Sylvia Earle

Dagfari búinn í slipp

1470. Dagfari ex Salka. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Dagfari hefir verið í slipp á Húsavík að undanförni en fór niður um helgina svona nýskveraður og fínn. Það er Norðursigling á Húsavík sem gerir hann út en Dagfari hét áður Salka.  Báturinn hét upphaflega Hafsúlan RE 77 og var smíðaður í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið … Halda áfram að lesa Dagfari búinn í slipp

Sylvía komin heim

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hvalaskoðunarbáturinn Sylvía kom til heimahafnar á Húsavík í morgun eftir siglingu frá Stykkishólmi. Hún hefur verið í Skipavík sl. fimm mánuði þar sem auk venjulegs viðhalds var m.a skipt um aðalvél og vélarrúmið endurnýjað frá A-Ö. Það er Gentle Giants sem gerir Sylvíu út en … Halda áfram að lesa Sylvía komin heim

Árni Friðriksson HF 200

2350. Árni Friðriksson HF 200 ex Árni Friðriksson RE 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson HF 200 er hér í Hafnarfjarðarhöfn í byrjun maímánaðar. Árni Friðriksson, sem var upphaflega RE 200, var smíðaður í Asmar skipasmíðistöðinni í Chile og afhent Hafrannsóknastofnun árið 2000. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Árni Friðriksson HF 200

Fjögur skip í dag

Húsavík í dag 21. maí 2024. Á þessari mynd sem tekin var í dag gefur að líta fjögur skip, Ronja Fjörd liggur við Þvergarðinn, Friðþjóf Nansen við Norðurgarðinn, Vechtborg við Bökugarðinn og fram undan höfðanum er Silver Endeavour. Þetta eru tvö skemmtiferðaskip, eitt flutningaskip með farm til PCC á Bakka og seiðaflutningaskip. Ef myndin hefði … Halda áfram að lesa Fjögur skip í dag

Þorlákur ÍS 15

2446. Þorlákur ÍS 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorlákur ÍS 15 var smíðaður í Póllandi og kom til heimahafnar í Bolungarvík í ágústmánuði árið 2000. Þorlákur, sem er 29 metrar að lengd, 7,5 metra breiður og 251 brúttótonn að stærð, hefur alla tíð verið gerður út frá Bolungarvík. Skipið var smíðað sem línuskip búið beitningarvél en síðar útbúið til … Halda áfram að lesa Þorlákur ÍS 15

Vestmann GK 21

7022. Vestmann GK 21 ex Óskar SK 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Strandveiðibáturinn Vestmann GK 21 kemur hér að landi í Sandgerði í upphafi maímánaðar en Tonan ehf. gerir hann út. Upphaflega hét báturinn Kristín Finnbogadóttir BA 95 frá Patreksfirði og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun hf. í Hafnarfirði árið 1988. Árið 2001 fékk báturinn … Halda áfram að lesa Vestmann GK 21