IMO 9832119. Rusadir ex Honfleur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér leggur ferjan Rusadir upp í siglingu frá Malaga síðdegis í dag til Melilla í Marakkó. Rusadir, sem áður hér Honfleur, var smíðuð i Þýskalandi árið 2022 og siglir undir fána Kýpur með heimahöfn í Limassol. Skipið er 187,4 metrar að lengd, breidd þess er 31 … Halda áfram að lesa Rusadir leggur úr höfn í Malaga
Máttu muna sinn fífil fegri
1390. Jón Guðmundsson ÍS 75 ex Vopni NS 65. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Hér gefur að líta fjóra trébáta sem máttu muna sinn fífil fegurri þegar þarna var komið við sögu en myndirnar voru teknar suður með sjó í aprílmánuði árið 2008. Þetta eru Jón Guðmundsson ÍS 75, Una SU 37, Særós KE 2 og … Halda áfram að lesa Máttu muna sinn fífil fegri
Huginn VE 55
2411. Huginn VE 55. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Huginn VE 55 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum á dögunum en það er Vinnslustöðin sem gerir hann út. Um skipið skipið má lesa hér en það var smíðað í Chile árið 2001. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Huginn VE 55
Umlungisi í Hafnarfjarðarhöfn.
IMO 8704975. Umlungisi ZRUC ex Örfirisey RE 4. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Maggi Jóns tók þessa mynd af Umlungisi í Hafnarfjarðarhöfn í dag. Þetta er fyrrum Örfirisey RE 4 sem seld var til Suður Afríku í sumar og hefur fengið nafnið Umlungisi með heimahöfn í Cape Town. Togarinn var smíðaður árið 1988 í Kristiansund í … Halda áfram að lesa Umlungisi í Hafnarfjarðarhöfn.
Aberdeen kom til Húsavíkur með salt
IMO 9313723. Aberdeen ex Wilson Aberdeen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Aberdeen kom til Húsavíkur um kaffileytið með saltfarm en það kom hingað frá Ólafsvík. Skipið var smíðað í Slóvakíu árið 2009 og hefur áður borið nöfnin Wilson Aberdeen og Stortebeker. Aberdeen siglir undir fána Luxemborgar og er 2,451 GT að stærð. Lengd skipsins er … Halda áfram að lesa Aberdeen kom til Húsavíkur með salt
Tjaldur og Rifsnes á Rifi
2158. Tjaldur SH 270 - 2847. Rifsnes SH 44. Ljósmynd Sigurður Friðfinnsson 2024. Sigurður Friðfinnsson tók þessa myndir í gærmorgun af línuskipunum Tjaldi SH 270 og Rifsnesi SH 44 þar sem þau liggja í blankalogni við bryggju á Rifi. Um Tjaldinn má lesa hér en Hraðfrystihús Hellisands keypti Rifsnesið til landsins árið 2013. Það hét … Halda áfram að lesa Tjaldur og Rifsnes á Rifi
Dröfn BA 62
325. Dröfn BA 62 ex Dröfn KE 6. Ljósmynd Hafþór hreiðarsson. Dröfn BA 62 hét upphaflega Kvikstur KÓ 13 og var smíðuð í Bátalóni árið 1960. Báturinn, sem var 11 brl. að stærð, var ári síðar kominn norður á Þórshöfn á Langanesi þar sem hann fékk nafnið Bjargá ÞH 102. Árið 1973 fékk báturinn nafnið … Halda áfram að lesa Dröfn BA 62
Sigurþór GK 43
1427. Sigurþór GK 43 ex Árni ÓF 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurþór GK 43 hét upphaflega Árni ÓF 44 og var smíðaður 1975 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn, sem var rétt tæplega 30 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Árna sf. á Ólafsfirði en árið 1983 er hann seldur til Grindavíkur. Þar fær … Halda áfram að lesa Sigurþór GK 43
Tjaldanes GK 525
124. Tjaldanes GK 525 ex Gaukur GK 660. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Netabáturinn Tjaldanes GK 525 kemur hér til hafnar í Njarðvík sumarið 2004. Báturinn var smíðaður árið 1962 í Molde í Noregi fyrir Gauksstaði h/f í Garði og hét Jón Finnsson GK 506. Hann hét síðar Friðþjófur SU 103, Verðandi KÓ 40 og Verðandi … Halda áfram að lesa Tjaldanes GK 525
Hafdís SK 4
2323. Hafdís SK 4 ex Hafborg EA 242. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Dragnótabáturinn Hafdís SK 4 frá Sauðárkróki kemur hér að landi á Húsavík síðdegis í dag. Það er FISK Seafood sem gerir bátinn út en hann hét áður Hafborg EA úr Grímsey en Hafdísarnafnið fékk báturinn í nóvember í fyrra. Hafdís SK 4, sem … Halda áfram að lesa Hafdís SK 4









