2678. Addi afi GK 37 ex Alli GK 37. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Netabáturinn Addi afi GK 37 hafði nýlokið við að draga netin í morgun rétt fyrir utan Njarðvík þegar Jón Steinar tók þessar myndir. Báturinn hét upphaflega Jón Páll BA 133 og var smíðuð í Bátagerðinni Samtak árið 2006. Árið 2008 fékk … Halda áfram að lesa Addi afi GK 37
Aron ÞH 105
586. Aron ÞH 105 ex Fargranes ÞH 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aron ÞH 105 kemur hér að landi á Húsavík eftir dragnótaróður á Skjálfanda um árið. Báturinn sem var 76 brl. að stærð hét uppgaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð í V-Þýskalandi árið 1959 fyrir Hrönn h/f á Ísafirði. Báturinn bar síðan nöfnin Hrönn … Halda áfram að lesa Aron ÞH 105
Votaberg SU 10
962. Votaberg SU 10 ex Gestur SU 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Votaberg SU 10 frá Eskifirði kemur hér til hafnar á Húsavík eftir úthafsrækjuveiðitúr en skipið var gert út af Eskju á Eskifirði. Upphaflega hét skipið Óskar Halldórsson RE 157 og var smíðaður árið ð1964 í Zandaam í Hollandi fyrir Ólaf Óskarsson útgerðarmann í Reykjavík. Óskar Halldórsson … Halda áfram að lesa Votaberg SU 10
Kristbjörg II í slipp á Akureyri
1009. Kristbjörg II ÞH 244 ex Þuríður Halldórsdóttir GK 94. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Kristbjörg II ÞH 244 er hér í slipp á Akureyri vorið 1992 og niður fór hún fagurrauð sem Kristbjörg ÞH 44. Báturinn hét upphaflega Sóley ÍS 225 frá Flateyri og kom ný til heimahafnar í lok maímánaðar 1966. Smíðuð í Risør í … Halda áfram að lesa Kristbjörg II í slipp á Akureyri
Jóhannes Ívar ÍS 193
1321. Jóhannes Ívar ÍS 193 ex Jóhannes Ívar KE 85. Ljósmynd Björgvin Árnason. Jóhannes Ívar ÍS 193 var smíðaður í Vestnes í Noregi árið 1969 og hét Bye Senior þegar hann var keyptur til landsins árið 1973. Þá fékk hann nafnið Reynir GK 177 með heimahöfn í Sandgerði. Annars er miðinn frá Hauk svona: 1321….Reynir … Halda áfram að lesa Jóhannes Ívar ÍS 193
Ársæll SH 88
1191. Ársæll SH 88 ex Kópur ÁR 9. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Ársæll SH 88 hét hét upphaflega Skálafell ÁR 20 á íslenskri skipaskrá en báturinn var keyptur til landsins frá Noregi árið 1971, þá þriggja ára. Hann átti eftir að bera nöfnin Hegri KE 107, Heimir KE 77 og Kópur ÁR 9 áður en hann … Halda áfram að lesa Ársæll SH 88
Árni Geir KE 74
89. Árni Geir KE 74 ex Ásgeir Magnússon GK 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1985. Árni Geir KE 74 hét upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði og var smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi árið 1963. Um bátinn má lesa nánar hér en ef minni ljósmyndarans bregst ekki var myndin tekin haustið 1985. … Halda áfram að lesa Árni Geir KE 74
Bjarni Svein SH 103
1851. Bjarni Svein SH 103 ex Arnar II SH 457. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bjarni Svein SH 103 hét upphaflega Friðgeir Björgvinsson RE 400 og var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ árið 1987. Um bátinn, sem var lengdur árið 1997, má lesa nánar hér en hann ber nafnið Sól ÍS 330 í dag. Með því að smella … Halda áfram að lesa Bjarni Svein SH 103
Harðbakur EA 303
1412. Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til heimahafnar á Akureyri þann 26. mars árið 1975. Útgerðarfélag Akureyringa h/f. fékk einnig næst síðasta skuttogarann sem smíðaður var … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 303
Kópur BA 175
1063. Kópur BA 175 ex Kópur GK 175. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Línubáturinn Kópur BA 175 frá Tálknafirði kom til Húsavíkur í febrúarmánuði árið 2005 og þá voru þessar myndir teknar. Kópur hét upphaflega Tálknfirðingur BA 325 og var smíðaður í Noregi árið 1968. Eigandi Harðfrystihús Tálknafjarðar. Vorið 1980 kaupir Glettingur hf. í Þorlákshöfn bátinn … Halda áfram að lesa Kópur BA 175









