Reistarnúpur ÞH 273

586. Reistarnúpur ÞH 273 ex Aron ÞH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.  Rækjubáturinn Reistarnúpur ÞH 273 frá Raufarhöfn kemur hér að landi á Húsavík eftir róður á Skjálfanda um árið. Reistarnúpur, sem áður hét Aron ÞH 105, var gerður út af Jökli hf. á Raufarhöfn sem keypti bátinn haustið 1997. Báturinn sem var 76 brl. að … Halda áfram að lesa Reistarnúpur ÞH 273

Varðskipið Freyja á Skagafirði

3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jón Steinar tók þessa mynd af varðskipinu Freyju í gær þar sem skipið lá fyrir akkeri fyrir mynni Hjaltadals inni á Skagafirði. Varðskipið Freyja er 86 metra langt og 20 metra breitt, smíðað árið 2010 og var keypt til Íslands árið 2021. Með því að smella … Halda áfram að lesa Varðskipið Freyja á Skagafirði

Hafrún HU að veiðum á Húnaflóa

530. Hafrún HU 12 ex Bliki HF 72. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar Sæmundsson tók þessar myndir í gær en þær sýna dragnótabátinn hafrúnu HU 12 við dragnótaveiðar á Húnaflóa. Hafrún hét upphaflega Gjafar VE 300 og var smíðuð í Zaandam í Hollandi árið 1956. Árið 1960 fékk báturinn Hafrúnarnafnið og varð GK … Halda áfram að lesa Hafrún HU að veiðum á Húnaflóa

Dagrún að draga netin

2617. Dagrún HU 121 ex Bergvík KE 22. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessa myndasyrpur í dag af netabátnum Dagrúnu HU 121 þar sem hún var að draga netin úti fyrir Skagaströnd. Dagrún hét upphaflega Daðey GK 777 frá Grindavík og var yfirbyggður línubátur smíðaður hjá Mótun ehf í Njarðvík árið 2004. … Halda áfram að lesa Dagrún að draga netin

Jökull ÞH 299

2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Jökull ÞH 299 kom til löndunar á Húsavík nú undir kvöld en báturinn er á þorskanetum. Jökull hefur verið að veiðum í Breiðafirði að undanförnu og landað á Grundarfirði. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 299

Örkin kom í dag

1420. Örkin ex Keilir SI 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Örkin frá Siglufirði kom til Húsavíkur í hádeginu þeirra erinda að fara í slipp en báturinn er í eigu Gunnars Júlíussonar á Siglufirði  Það er gaman að geta þess að eftir c.a mánuð eru 50 ár síðan báturinn kom í fyrsta skipti til hafnar á Húsavík … Halda áfram að lesa Örkin kom í dag