1030. Örfirisey RE 14. Ljósmynd úr einkasafni. Örfirisey RE 14 kemur hér að bryggju á Húsavík í febrúarmánuði árið 1967. Húsavík var fyrsta höfn sem hún kom í eftir heimsiglingu frá Hollandi þar sem skipið var smíðað, nánar tiltekið í Deest. Um Örfirisey má lesa hér og þar kemur m.a fram af hverju Húsavík var fyrsta höfnin … Halda áfram að lesa Örfirisey RE 14
Bátar við bryggju
Bátar við bryggju í Sandgerði. Ljósmynd úr einkasafni. Hér gefur að líta mynd sem sýnir báta við bryggju og hygg ég að þetta hún sé tekin í Sandgerði. Við bryggjuna liggur (559) Helga TH 7 frá Húsavík og utan á henni (542) Hamar GK 32. Því næst (929) Muninn II GK 343. Spurning hver er … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju
Stefnir VE 125
1213. Stefnir VE 125 ex Sigurfari VE 138. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Stefnir VE 125 hét upphaflega Heimaey VE 1 og var smíðaður árið 1972 í Slippstöðinn á Akureyri. Báturinn, sem upphaflega var 105 brl. að stærð, var lengdur árið 1973 og mældist þá 126 brl. að stærð. Árið 1979 var hann styttur og yfirbyggður og … Halda áfram að lesa Stefnir VE 125
Við Húsavíkurhöfn
Við Húsavíkurhöfn 8. janúar 2026. Það var stillt veður og 5-6 stiga frost síðdegis í dag þegar þessi mynd var tekin við Húsavíkurhöfn og ekkert meira um það að segja. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn
Ágúst Guðmundsson GK 95
266. Ágúst Guðmundsson GK 95. Ljósmynd úr einkaafni. Hér kemur ein mynd frá síldarárunum og sýnri Ágúst Guðmundsson GK 95 úr Vogum koma drekkhlaðinn að landi á Raufarhöfn. Ágúst Guðmundsson GK 95 var smíðaður í Danmörku árið 1957 og var 55 brl. að stærð. Hann var smíðaður fyrir þá Guðmund, Magnús og Ragnar Ágústssyni í … Halda áfram að lesa Ágúst Guðmundsson GK 95
Halla ÍS 3
1324. Halla ÍS 3 ex Hrafnreyður KÓ 100. Ljósmynd Vigfús Markússon. Halla ÍS 3 hét upphaflega Ottó Wathne NS 90 og var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1973. Ottó Wathne NS 90 var seldur til Hornafjarðar árið 1981 þar sem hann fékk nafnið Bjarni Gíslason SF 90. Árið 2005 var báturinn seldur til Vestmannaeyja … Halda áfram að lesa Halla ÍS 3
Skálafell ÁR 205
1311. Skálafell ÁR 205 ex Rík ÁR 205. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Á dögunum birtist mynd af Skálafelli ÁR 205 og hér kemur önnur þar sem búið var að skipta um brú á bátnum. Upphaflega hét báturinn Stefán Guðfinnur SU 78 og var smíðaður hjá Trésmiðju Austurlands hf. á Fáskrúðsfirði árið 1973. Lesa nánar um bátinn … Halda áfram að lesa Skálafell ÁR 205
Bliki EA 12
2435. Bliki EA 12 ex Sæli BA 333. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Bliki EA 12 sem hér kemur að landi á Dalvík vorið 2007 hét upphaflega Sæli BA 333 og var smíðaður hjá Trefjum árið 2000. Bliki var gerður út frá Dalvík á árunum 2006-2007 en var þá seldur til Ísafjarðar þar sem hann fékk … Halda áfram að lesa Bliki EA 12
Helga II RE 373
1348. Helga II RE 373 ex Skúmur RE 373. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Helga II RE 373 var einn af minni Spánartogurunum og hét upphaflega Aðalvík KE 95. Togarinn bar ekki lengi nafnið Helga II RE 373 en hér má lesa nánar um skipið. Aðalvík fékk síðar nöfnin Drangey SK 1, Eyvindur Vopni NS 70, Óseyri … Halda áfram að lesa Helga II RE 373
Hafaldan EA 87
2327. Hafaldan EA 87 ex Eldey GK 119. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Hafaldan EA 87 úr Grímsey lætur hér úr höfn á Húsavík í maímánuði árið 2002. Báturinn hét upphaflega Eldey GK 119 og var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak í Hafnarfirðir árið 1998. Árið 1999 var báturinn seldur út í Grímsey þar sem hann fékk … Halda áfram að lesa Hafaldan EA 87









