Ásdís ÞH 136

2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það var góður dagur í dag á Ásdísi ÞH 136 sem stundar grásleppuveiðar frá Húsavík. Báturinn kom að landi í kvöld með á sjöunda tonn en verið var að draga í fyrsta skipti þessa vertíðina. Áður höfðu kallarnir stundað grásleppuveiðar á öðrum … Halda áfram að lesa Ásdís ÞH 136

Gullþór KE 87

721. Gullþór KE 87 ex Sigurbjörg VE 62. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Gullþór KE 87 kemur hér að landi í Keflavík en þaðan var báturinn gerður út um tveggja ára skeið. Gullþór hét upphaflega Pálmar NS 11 og var smíðaður árið 1946 hjá Skipasmíðastöð Austfjarða á Seyðisfirði. Báturinn var míðaður fyrir Þormar hf. Seyðisfirði og var … Halda áfram að lesa Gullþór KE 87

Wilson Drammen á Húsavík

IMO: 9390094. Wilson Drammen ex Kastor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Wilson Drammen kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Norðurgarði þar sem skipað er upp áburði. Wilson Drammen er 2,452 GT að stærð. Lengd skipsins er 89,7 metrar og breidd þess 12,8 metrar. Skipið var smíða árið 2007 og hét áður Kastor. Það … Halda áfram að lesa Wilson Drammen á Húsavík

Kristín ÞH 55

7526. Kristín ÞH 55 ex Kristín HU 219. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Strandveiðibáturinn Kristín ÞH 55 kom til Húsavíkur áðan en veiðar mega hefjast á morgun. Kristín er gerð út af Möðruvöllum ehf. á Akureyri en er með heimahöfn á Raufarhöfn þaðan sem hún hefur verið gerð út. Landaði í fyrra ýmist á Raufarhöfn eða … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 55

Óskar ÞH 208

6009. Óskar ÞH 208. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Óskar ÞH 208 er hér á siglingu á Skjálfanda um árið en hann var smíðaður fyrir Kristján Gunnar Óskarsson árið 1978. Smíði bátsins, sem er rúmlega 2 brl. að stærð, fór fram í Bátasmiðjunni Mótun í Hafnarfirði. Báturinn skipti um eigendur innan bæjar á Húsavík í tvígang. Baldvin … Halda áfram að lesa Óskar ÞH 208