Þórður Jónasson í Krossanesi

264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnuskipið Þórður Jónasson EA 350 sést hér við bryggju í Krossanesi þar sem verið var að landa úr því. Þórður Jónasson, sem smíðaður var í Noregi og kom til Akureyrar í júníbyrjun árið 1964, var upphaflega RE 350. Hann var smíðaður fyrir … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson í Krossanesi

Huginn í Krossanesi

1411. Huginn VE 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Huginn VE 55 liggur hér við bryggju í Krossanesi við Akureyri á síðustu öld en hann kom nýr til heimahafnar í Vestmannaeyjum 30. janúar árið 1975. Huginn var smíðaður hjá Baatservice Verft A/S, í Mandal í Noregi, smíðanúmer 617, og var nr. tvö í raðsmíði fjögurra skipa hjá stöðinni fyrir íslenska útgerðaraðila. Eigandi skipsins var Huginn h.f í … Halda áfram að lesa Huginn í Krossanesi

Gunnar Hámundarson GK 357

500. Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþor Hreiðarsson. Gunnar Hámundarson GK 357 kemur hér að landi í Keflavík um árið en hann var með heimahöfn í Garði. Báturinn var smíðaður árið 1954 í Ytri Njarðvík. Hann var með smíðanúmer 1 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og er 53 brl. að stærð Gunnar Hámundarson GK 500 var seldur … Halda áfram að lesa Gunnar Hámundarson GK 357

Júpíter ÞH 363

2463. Júpíter ÞH 363 ex Jupiter II FD 235. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Júpíter ÞH 363 var keyptur frá Færeyjum haustið 2004 og kom til heimahafnar á Þórshöfn í október það ár. Í Verinu, sjávarútvegsblaði Morgunblaðsins sagði: NÝTT skip bættist í flota Þórshafnar þegar Júpíter ÞH-363 sigldi í heimahöfn. Fjölmenni var á hafnarbakkanum til að … Halda áfram að lesa Júpíter ÞH 363

Gleðilegt nýtt ár – Happy new year

Húsavík 2003. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Með því að smella á myndina, sem er ríflega tuttugu ára gömul, er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Gleðilegt nýtt ár – Happy new year

Búrfell KE 140

17. Búrfell KE 140 ex Búrfell ÁR 40. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Búrfell KE 140 var hér myndað af löngu færi um árið þegar síldveiðar voru stundaðar innan fjarða fyrir austan. Upphaflega Ásbjörn RE 400, smíðaður fyrir Ísbjörninn hf. í Noregi árið 1963. Í árslok 1971 var Búrfellið selt Þorláksvör hf. í Þorlákshöfn og varð þá … Halda áfram að lesa Búrfell KE 140

Sighvatur GK 57

975. Sighvatur GK 57 ex Bjartur. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Sighvatur GK 57 á siglingu á Breiðafirði á vetrarvertíðinni 1982 frekar en þrjú. Sighvatur hét upphaflega Bjartur NK 121 og var einn átján báta sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í Boizenburg á árunum 1964-1967. Samkvæmt bókaröðinni Íslensk skip eignaðist Vísir hf. bátinn í ársbyrjun 1982 en … Halda áfram að lesa Sighvatur GK 57