Varnebank kom í morgun

IMO 9213739. Varnebank. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Varnebank kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Varnebank, sem er með heimahöfn í Delfzijl, var smíðað í Hollandi árið 2002. Skipið er 6,130 GT að stærð, lengd þess er 132 metrar og breiddin 16 metrar. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Varnebank kom í morgun

Þorsteinn í slipp

926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þor­steinn GK 15, sem gerður var lengi út frá Raufar­höfn, er hér í slipp á Húsavík um árið. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Fal­ken­berg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15, þá GK 15 … Halda áfram að lesa Þorsteinn í slipp

Sæfell ÍS 820

221. Sæfell ÍS 820 ex Vonin KE 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæfell ÍS 820 hét upphaflega Pálína SK 2 frá Hofsósi og síðar lengi vel Vonin KE 2. Haukur Sigtryggur sendi miða: 0221....Pálína SK 2... TF-HY. Skipasmíðastöð: ? Hardinxveld. Hollandi. 1960. 1963 = Brúttó: 180. U-þilfari: 142. Nettó: 68. Lengd: 30,52. Breidd: 6,84. Dýpt: 3,13. … Halda áfram að lesa Sæfell ÍS 820

Kolbeinsey ÞH 10

1576. Kolbeinsey ÞH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kolbeinsey ÞH 10 liggur hér við Þvergarðinn í Húsavíkurhöfn en þar var hennar pláss. Togarinn var smíðaður fyrir Höfða hf. á Húsavík í Slippstöðinni á Akureyri.  Kolbeinsey var gefið nafn og hún sjósett þann 7. febrúar 1981. Til heimahafnar kom hún 10. maí sama ár. Kolbeinsey var eins og segir í upphafi fyrst … Halda áfram að lesa Kolbeinsey ÞH 10

Tu­uga­alik

IMO:9922897. Tuugaalik GR-6-10. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Græn­lenski frysti­tog­ar­inn Tu­uga­alik GR-6-10 kom til Hafnarfjarðar á dögunum en þar landar togarinn reglulega. Togarinn, sem er nýr og glæsilegur eins og lesa má um hér, var nokkuð laskaður að sjá en hann  rakst á borga­rís­jaka í mik­illi þoku við veiðar milli Græn­lands og Íslands.  Lesa nánar um … Halda áfram að lesa Tu­uga­alik