2740. Vörður EA 748. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Fisk Seafood ehf. gekk í dag frá kaupum Verði EA 748 og Áskeli EA 749 af Gjögri hf. á Grenivík. Einnig keypti Fisk Seafood tæplega 660 tonn af aflaheimildum Gjögurs. Verðmæti viðskiptanna miðað við núverandi gengisskráningu eru tæpir 1,7 milljarðar króna. Mbl.is greinir frá þessu. Eftir kaupin … Halda áfram að lesa FISK Seafood kaupir Vörð og Áskel
Flokkur: Togarar
Júlíus Havsteen ÞH 1
2262. Júlíus Havsteen ÞH ex Quaasiut II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1996. Júlíus Havsteen ÞH 1 kom til heimahafnar á Húsavík í lok janúar 1996 en skipið hafði verið keypt frá Grænlandi. Samið var um kaupin á togaranum sem keyptur var frá Grænlandi um mitt ár 1995 og birtist eftirfarandi frétt í Morgunblaðinu þann 15. júlí … Halda áfram að lesa Júlíus Havsteen ÞH 1
Björgúlfur EA 312
2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Björgúlfur EA 312 liggur nú við Slippkantinn á Akureyri prýddur jólaljósum. Björgúlfur var smíðaður í Tyrklandi árið 2017 og kom til heimahafnar á Dalvík 1. júní það ár. Björgúlfur er einn fjögurra togara sem smíðaður er eftir sömu teikningu fyrir íslenskar útgerðir í Tyrklandi. Kaldbakur EA kom … Halda áfram að lesa Björgúlfur EA 312
Helgi SH 135
2017. Helgi SH 135 ex Þór Pétursson GK 504. Ljósmynd Gundi 2013. Gundi tók þessa mynd af togbátnum Helga SH 135 koma til hafnar á Grundarfirði í júlímánuði 2013. Guðmundur Runólfsson hf. á bátinn en hann var keyptur frá Sandgerði árið 2000 en þar hét hann Þór Pétursson GK 504. Helgi SH 135 hét upphaflega … Halda áfram að lesa Helgi SH 135
Skálaberg RE 7
2850. Skálaberg RE 7 ex Esperanza Del Sur. Ljósmynd Jósef Ægir Stefánsson 2013. Skálaberg RE 7 kom til heimahafnar í Reykjavík í byrjun sumars árið 2013 en Brim h/f hafði keypt togarann haustið 2012 frá Argentínu. Skálabergið var smíðað í Noregi 2003 fyrir færeyskt útgerðarfélag og hét Skálaberg KG 118. Skálabergið var gert út frá Færeyjum … Halda áfram að lesa Skálaberg RE 7
Sólberg ÓF á Ólafsfirði
2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Þessar þrjár myndir sem birtast núna tók ég á Ólafsfirði þegar Sólberg ÓF 1 sigldi inn á fjörðinn eftir heimsiglingu frá Tyrklandi. 19. maí 2017. Þaðan var svo siglt yfir til Siglufjarðar þar sem tekið var á móti skipinu. 2917. Sólberg ÓF 1 siglir inn með Kleifunum. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF á Ólafsfirði
Guðmundur í Nesi RE 13
2626. Guðmundur í Nesi RE 13 ex Hvilvtenni. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Guðmundur í Nesi RE 13 er hér á siglingu á Eyjafirði en myndina tók ég þann 1. nóvember 2008. Nú tíu árum síðar og tæpum mánuði betur var áhöfninni sagt upp og togarinn settur á söluskrá. Guðmundur í Nesi var smíðaður árið 2000 … Halda áfram að lesa Guðmundur í Nesi RE 13
Viðey RE 50
2895. Viðey RE 50. Ljósmynd Óskar Franz 2018. Viðey RE 50 sem hér kemur til Reykjavíkur í sumar er ein þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Tyrklandi. Hinar eru Engey RE 91 og Akurey AK 10 en Viðey RE 50 var síðust í röðinni. Hún leysti Ottó N Þorláksson RE 203 af hólmi … Halda áfram að lesa Viðey RE 50
Ljósafell SU 70
1277. Ljósafell SU 7o. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Togarinn Ljósafell SU 70 frá Fáskrúðsfirði er hér að toga inn á Eyjafirði haustið 2017 en þá var hann í togararalli fyrir Hafró. Ljósafell SU 70 var smíðað 1973 í Japan en fór í umtalsverðar breytingar og endurbætur í Póllandi 1989 og aftur 2007. Skipið er 55,9 m … Halda áfram að lesa Ljósafell SU 70
Kaldbakur EA 1
2891. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Kaldbakur EA 1 kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri 4. mars árið 2017. Þá tók ég þessar myndir sem hér birtast. Kaldbakur var fyrstur í röðinni af fjórum systurskipum sem smíðuð voru hjá Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hin eru Björgúlfur EA 312, Drangey SK 2 og Björg … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1









