2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 hélt til veiða í byrjun vikunnar og tók Jón Steinar þessar drónamyndir þá. Við látum myndirnar tala sínu máli en hér má lesa um togarann. 2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson GK 10
Flokkur: Togarar
Skúmur ÍS 322
1872. Skúmur ÍS 322 ex Skúmur GK 22. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1995. Hreiðar Olgeirsson tók þessa mynd veturinn 1995 þegar Skúmur ÍS 322 kom að slippkantinum á Akureyri. Geiri Péturs ehf. á Húsavík hafði þá keypt skipið sem var að fara í skveringu hjá Slippstöðinni. Upphaflega hét skipið Skúmur GK 22 í eigu Fiskaness h/f … Halda áfram að lesa Skúmur ÍS 322
Bylgja VE 75
2025. Bylgja VE 75. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Togskipið Bylgja VE 75 landaði í Grindavík í gærmorgun um 70 tonna afla, uppistaða þorskur og ufsi. Hún hélt aftur til veiða um miðjan dag og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Bylgja VE 75 er gerð út af samnendu fyrirtæki sem Matthías Óskarsson stendur að … Halda áfram að lesa Bylgja VE 75
Árbakur EA 5
2154. Árbakur EA 5 ex Árbakur EA 308. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Hér kemur Akureyrartogarinn Árbakur EA 5, til heimahafnar í júlímánuði árið 2006. Árbakur, sem áður hét Natsek, var smíðaður fyrir Grænlendinga árið 1980 hjá Örskov Christensens Staalskibsvært A/S, Frederikshavn í Danmörku, og var smíðanúmer 112 hjá stöðinni. Skipið var hannað af Nordvestconsult A/S … Halda áfram að lesa Árbakur EA 5
Björgúlfur á miðunum
2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N tók þessar myndir á miðunum af Dalvíkurtogaranum Björgúlfi EA 312. Björgúlfur er eins og margir vita eitt fjögurra systurskipa sem smíðuð voru fyrir íslendinga hjá Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhent á árinu 2017. 2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. … Halda áfram að lesa Björgúlfur á miðunum
Björg EA 7 að veiðum í morgun
2894. Björg EA 7. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 tók þessar myndir um kl. 7 í morgun og sýna þær Samherjatogarann Björgu EA 7 að veiðum sunnan við Surtsey. Björg EA 7 var síðust í röð fjögurra systurskipa sem smíðuð voru fyrir íslendinga hjá Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi … Halda áfram að lesa Björg EA 7 að veiðum í morgun
Skutull ÍS 180
1383. Skutull ÍS 180 ex Hafþór RE 40. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Rækjutogarinn Skutull RE 180 hét upphaflega Baldur EA 124 og kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Dalvík um mitt ár 1974. Baldur var í eigu Aðalsteins Loftssonar útgerðarmanns á Dalvík. Um einu og hálfu árið síðar var Baldur kominn í eigu Ríkissjóðs og … Halda áfram að lesa Skutull ÍS 180
Heiðrún GK 505
1506. Heiðrún GK 505 ex Heiðrún ÍS 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Heiðrún GK 505 lætur hér úr höfn á Húsavík áleiðis á rækjumiðin út af Norðurlandi. Heiðrún, sem var 294 brl. að stærð, var smíðuð árið 1978 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar h/f á Ísafirði fyrir Völustein h/f í Bolungarvík. Togarinn var búinn 1450 hestafla Alpha … Halda áfram að lesa Heiðrún GK 505
Helga María RE 1
1868. Helga María RE 1 ex Helga María AK 16. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2020. Gundi á Frosta ÞH 229 sendi þessa mögnuðu myndir af Helgu Maríu RE 1 sem eitt sinn var AK 16. Upphaflega þó Haraldur Kristjánsson HF 2, smíðaður í Flekkefjord í Noregi 1988 fyrir Sjólastöðina í Hafnarfirði. Hér má lesa nánar … Halda áfram að lesa Helga María RE 1
Stapavíkin á siglingu
1121. Stapavík SI 5 ex Þorleifur Jónsson SI 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það hefur áður birst á síðunni mynd úr þessari syrpu af Stapavík SI 5 sem ég tók, rétt fyrir 1990, þegar við á Geira Péturs ÞH 344 mættum henni er við vorum á útleið frá Siglufirði. Stapavík SI 5 var í eigu Þormóðs … Halda áfram að lesa Stapavíkin á siglingu









