Njörður í kvöldsólinni

7311. Njörður ÞH 444 ex Hanna Ellerts SH 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Þessa mynd af strandveiðibátnum Nirði ÞH 444 tók ég í kvöldsól gærdagsins þar sem hann lá við bryggju á Húsavík. Njörður hét áður Hanna Ellerts SH 4 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1991. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Njörður í kvöldsólinni →

Tjúlla GK 29 á landleið

2595. Tjúlla GK 29 ex Grunnvíkingur HF 163. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Tjúlla GK 29 er hér á leið til hafnar í Sandgerði eftir róður í fyrradag. Upphaflega hét báturinn Grunnvíkingur HF 163 og var smíðaður hjá Sólplasti í Sandgerði árið 2003. Heimahöfn Hafnarfjörður. Hann hefur heiti Tjúlla GK 29 frá árinu 2015, fyrst … Halda áfram að lesa Tjúlla GK 29 á landleið →

Ólafur GK 133

7336. Ólafur GK 133 ex Hafdís ÍS 35. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Hér er Ólafur GK 133, nýjasti strandveiðibátur Grindvíkinga, á skaki úti fyrir Hópsnesi við Grindavík í gær en Eiríkur Dagbjartsson gerir hann út í gegnum fyrirtæki sitt Grindjáni ehf. Ólafur GK 133 hét upphaflega Aðalbjörg Þorsteinsdóttir HF 33 og var smíðaður hjá … Halda áfram að lesa Ólafur GK 133 →

Svanur EA 14

7498. Svanur EA 14 ex Sigurveig EA 527. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Svanur EA 14 sem hér um ræðir var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2001. Upphaflega hét hann Vík SH 13 og var smíðaður fyrir  Útgerðarfélagið Kríli ehf. Grundarfirði. Ári síðar var báturinn seldur norður í land og fékk nafnið Sigurveig EA 527 … Halda áfram að lesa Svanur EA 14 →