Hólmsteinn GK 20

7789. Hólmsteinn GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Strandveiðibáturinn Hólmsteinn GK 20 kemur hér að landi í Sandgerði þann 2. maí sl. á fyrsta degi strandveiðatímabilsins 2024. Hólmsteinn, sem var smíðaður árið 1995, er gerður út af Austurlyngi ehf. með heimahöfn í Garði. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20

Háey I og Hafborg við bryggju

2995. Háey I ÞH 295 - 2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér gefur að líta línubátinn Háey I ÞH 295 og neta- og dragnótabátinn Hafborgu EA 152 þar sem þeir lágu við Suðurgarðinn í Húsavíkurhöfn í gærkveldi. Háey I er gerð út af GPG Seafood ehf. á Húsavík en er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Háey I og Hafborg við bryggju

Trillur í fjörunni

Trillur í fjörunni framundan hafnarstéttinni á Húsavík. Ljósmynd SRR. Hér gefur að líta trillur í fjörunni framundan hafnarstéttinni á Húsavík. Myndin var tekin um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Sú stærsta er ÞH 98 sem segir að þar sé um að ræða Ásgeir ÞH 98 sem síðar bar nöfnin Vilborg ÞH 98, Árný ÞH 98, … Halda áfram að lesa Trillur í fjörunni