2350. Árni Friðriksson HF 200 ex Árni Friðriksson RE 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson HF 200 kom til Húsavíkur í dag þar sem höfð voru áhafnarskipti. Árni Friðriksson, sem var upphaflega RE 200, var smíðaður í Asmar skipasmíðistöðinni í Chile og afhent Hafrannsóknastofnun árið 2000. 2350. Árni Friðriksson HF 200 ex Árni … Halda áfram að lesa Árni Friðriksson HF 200 á Skjálfanda
Flokkur: Önnur skip
Kofri
3033. Kofri. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Hér siglir þjónustubáturinn Kofri út Álftafjörðinn á dögunum en hann er í eigu fiskeldisfyrirtækisins Háafells ehf. og var smíðaður í Færeyjum árið 2022. Kofri, sem er með heimahöfn í Súðavík, er 56 BT að stærð og lengd hans er 15 metrar. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Kofri
Jóhanna
1076. Jóhanna BA ex Jóhanna Gísladóttir GK 557. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Hér gefur að líta Jóhönnu BA á siglingu í dag en hún þjónustar fiskeldið á Vestfjörðum og gerð út af Skeggja ehf. á Bíldudal. Jóhanna hét upphaflega Helga Guðmundsdóttir BA 77 var smíðuð í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi. Hún var smíðuð … Halda áfram að lesa Jóhanna
Hvalur 8 RE 388
117. Hvalur 8 RE 388. Ljósmynd Vigfús Markússon 2026. Hvalur 8 RE 388 var smíðaður í Noregi árið 1948 en Hvalur hf. keypti hann til landsins árið 1962. Vigfús Markússon tók þessa mynd á dögunum en verið er að undirbúa hvalbátana tvo fyrir komandi vertíð. Hvalur 8 er 48 metrar að lengd, breidd hans er … Halda áfram að lesa Hvalur 8 RE 388
Kópanes EA 164
1985. Kópanes EA 164 ex Kópanes SH 164. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Kópanes EA 164 er hér á siglingu á Eyjafirði vorið 2005 enn hann var þjónustubátur fyrir fiskeldi í firðinum. Báturinn hét upphaflega Freyr ST 11 og var smíðaður hjá Vélsmiðju Ol Olsen í Njarðvík árið 1989. Árið 1993 hét báturinn Njörður KE 208 … Halda áfram að lesa Kópanes EA 164
Fosnabátar komu og fóru
Fosna Victoria og Fosna Alpha koma til hafnar á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þrír norskir þjónustubátar við fiskeldi höfðu viðdvöl á Húsavík í dag en þeir lögðu upp í þessa siglingu frá Reyðarfirði í gær. Fyrstur kom Fosna Gregar og í kjölfarið komu Fosna Victoria og Fosna Alpha. Bátarnir lögðu svo úr höfn … Halda áfram að lesa Fosnabátar komu og fóru
Pétur mikli
7487. Pétur mikil. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Efnispramminn Pétur mikli var smíðaður hjá Deggendorfer Werft í Þýskalandi árið 1982 og er gerður út af Hagtaki hf. Þessar myndir voru teknar nú síðdegis en verið er að dýpka með Þvergarðinum í Húsavíkurhöfn vegna lengingar hans sem fyrirhuguð er. Pétur mikli er 51 metrar að lengd, lengd … Halda áfram að lesa Pétur mikli
Grettir sterki
3014. Grettir sterki ex Brusier. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Dráttarbátur Skagafjarðarhafna, Grettir sterki, kom til Húsavíkur í dag og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Grettir sterki, sem var að draga dýpkunarskipið Reyni til Húsavíkur, var smíðaður hjá Damen Shipyards í Gorinchem í Hollandi árið 2007. Báturinn er 20 metra langur, breidd hans er … Halda áfram að lesa Grettir sterki
Þórunn Þórðardóttir HF 300
3045. Þórunn Þórðardóttir HF 300. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar tók þessa myndasyrpu í gær þegar hafrannsóknarskipið Þórunn Þórðardóttir HF 300 kom til Hafnarfjarðar úr leiðangri. Skipið var smíðað hjá Astilleros Armon Vigo S.A. á Spáni og er 2000 BT að stærð og var afhent á síðasta ári. 3045. Þórunn Þórðardóttir HF 300. … Halda áfram að lesa Þórunn Þórðardóttir HF 300
Seglskipið Activ á Skjálfanda sumarið 2011
IMO 5346590. Activ ex Svendborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Seglskipð Activ sótti Húsavík heim sumarið 2011 í tilefni af siglingahátíðinni Sail Húsavík og var þessi mynd þá tekin á Skjálfanda. Activ er glæsilegt þriggja mastra seglskip sem smíðað var árið 1951í Svendburg í Danmörku. Hér má lesa sögu skipsins. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Seglskipið Activ á Skjálfanda sumarið 2011









