1525. Eldborg HF 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eldborg HF 13 siglir hér til hafnar á Eskifirði haustið 1984, eða 1986, og myndin var tekin úr síldveiðibátnum Geira Péturs ÞH 344. Eldborg HF 13 var smíðuð fyrir samnefnda útgerð árið 1978 og kom til heimahafnar í Hafnarfirði 30. desember það ár. Skipið var smíðanúmer 136 hjá … Halda áfram að lesa Eldborg HF 13
Flokkur: Nóta- og togskip
Svanur RE 45
1029. Svanur RE 45 ex Esjar RE 400. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Svanur RE 45 er hér á siglingu á einhverjum firðinum fyrir austan en myndina tók Hreiðar Olgeirsson á síldarvertíð 1982 eða 3. Svanur RE 45 hét upphaflega Brettingur NS 50 og var smíðaður árið 1967 fyrir Tanga h/f á Vopnafirði í Flekkufirði í Noregi. … Halda áfram að lesa Svanur RE 45
Guðrún Þorkelsdóttir SU 211
2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 ex Qavak GR 2 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Þór Jónsson á Djúpavogi, skipverji á Ljósafelli SU 70, tók þessa mynd af Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211 á miðunum seint í ágústmánuði. Eskja hf. keypti skipið haustið 2017 en það hét áður Qavak GR 2 1 og var í eigu dótturfélags … Halda áfram að lesa Guðrún Þorkelsdóttir SU 211
Jóna Eðvalds
2618. Jóna Eðvalds SF 200 ex Krossey SF 20. Ljósmynd Sverrir Aðalsteinsson 2020. Uppsjávarveiðiskipið Jóna Eðvalds SF 200 kom til Hafnar í Hornafirði í dag og tók Sverrir Aðalsteinsson þessa mynd eftir að hún lagðist að bryggju. Á heimasíðu Skinneyjar-Þinganess segir: Jóna Eðvalds var smíðuð hjá Flekkefjord skipasmíðastöðinni í Noregi árið 1975. Skipið hét áður … Halda áfram að lesa Jóna Eðvalds
Nýr Börkur sjósettur í Póllandi
Börkur NK 122. Ljósmynd svn.is 2020. Í gær hófst vinna við að sjósetja nýjan Börk en hann er í smíðum hjá danska fyrirtækinu Karstensens Skibsværft AS. Skrokkur skipsins er smíðaður í skipasmíðastöð Karstensens í Gdynia í Póllandi og þar fer sjósetningin fram. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að skrokkurinn verði dreginn í nóvember nk. til Skagen … Halda áfram að lesa Nýr Börkur sjósettur í Póllandi
Skinney SF 20 kom til Grindavíkur í dag
2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Skinney SF 20 kom til löndunar í Grindavík í dag en hún er á humarveiðum sem ganga tregla nú sem síðustu ár. Skinney, var líkt og systurskipið Þórir SF 77, smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan árið 2008 fyrir Skinney-Þinganes hf. á Höfn í … Halda áfram að lesa Skinney SF 20 kom til Grindavíkur í dag
Kap kom með makríl til Eyja
1742. Kap VE 4 ex Faxi RE 9. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Kap VE 4 kom með 250 tonn af makríl til Vestmannaeyja í morgun og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir þá. Eins og margir vita hér skipið upphaflega Jón Finnsson RE 506 og hér má fræðast meira um það. Annars látum við myndirnar tala … Halda áfram að lesa Kap kom með makríl til Eyja
Huginn kom með makríl til Eyja
2411. Huginn VE 55. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Huginn VE 55 kom með makrílfarm til Vestmannaeyja í morgun og þá tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir sem nú birtast. Huginn VE 55 var smíðaður í Chile fyrir samnefnt félag árið 2001 og lengdur um 7,2 metra í Póllandi á síðasta ári. 2411. Huginn VE 55. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Huginn kom með makríl til Eyja
Nýr Vilhelm sjósettur í Gdynia
Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Samherji.is 2020. Nýr Vilhelm Þorsteinsson EA var sjósettur hjá skipasmíðastöðinni Karstensens Skibsværft í Gdynia í Póllandi hinn 12. júní síðastliðinn. Skrokkurinn var tilbúinn til sjósetningar fyrir átta vikum en vegna Covid-19 heimsfaraldursins var ekki að ráðist í hana fyrr en nú. Á heimasíðu Samherja segir að skipið muni leysa af … Halda áfram að lesa Nýr Vilhelm sjósettur í Gdynia
Guðmundur Ólafur ÓF 91
2329. Guðmundur Ólafur ÓF 91 ex Sveinn Benediktsson SU 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson Guðmundur Ólafur ÓF 91 hét áður Sveinn Benediktsson SU 77 og var keyptur til landsins af SR Mjöl hf. árið 1999. Skipið var smíðað í Noregi árið 1990 og er 56 metra langt og 11 metra breitt, alls 1.230 brúttólestir. Hét upphaflega … Halda áfram að lesa Guðmundur Ólafur ÓF 91









