Wilson Porto kom með salt

IMO 9291717. Wilson Porto. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Wilson Porto kom með salt til GPG Seafood í vikunni. Skipið er 2,999 GT að stærð. Lengd þess er 90 metrar og breidd 14 metrar. Það var smíðað árið 2004 í Hollandi og siglir undir norsku flaggi. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Wilson Porto kom með salt →

Eems Rover kom til Húsavíkur

IMO 9529190. Eems Rover. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hollenska flutningaskipið Eems Rover kom til Húsavíkur í dag eftir siglingu frá Belfast á Norður-Írlandi. Skipið, sem smíðað var árið 2009 í Kína, er með með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Eems Rover er 90 metrar að lengd, breidd þess er 15 metrar og skipið mælist 2,992 … Halda áfram að lesa Eems Rover kom til Húsavíkur →

Dongeborg við Bökugarðinn

IMO:9163697. Dongeborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hollenska flutningaskipið Dongeborg kom til Húsavíkur í gærkveldi eftir siglingu frá El Ferrol á norður Spáni. Farmur skipsins er trjábolir, tæplega 7000 tonn en það mun vera stærsti timburfarmur sem komið hefur til PCC á Bakka. Dongeborg, sem er 6,205 GT að stærð, var smíðað í Hollandi árið 1999. … Halda áfram að lesa Dongeborg við Bökugarðinn →

Eystnes á Hornafirði

IMO:7922166. Eystnes ex Cometa. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2023. Færeyska flutningaskipið Eystnes, sem gert er út af Smyril Line, kemur hér að bryggju á Hornafirði fyrir skömmu. Skipið hét áður Cometa og var smíðað í Noregi árið 1981. Það er 4,610 GT að stærð, lengd þess er 103 metrar og breiddin 16 metrar. Heimahöfn skipsins er … Halda áfram að lesa Eystnes á Hornafirði →

Julie kom til Húsavíkur í dag

IMO 9277307. Julie ex Gures. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Julie kom til Húsavíkur í dag og lagðist að Bökugarði þar sem skipað verður upp hráefnisfami fyrir kíslilver PCC á Bakka. Julie, sem siglir undir fána Portúgals með heimahöfn á Madeira, var smíðað í Hollandi árið 2003. Skipið, sem áður hefur borið nöfnin Gures, Tip … Halda áfram að lesa Julie kom til Húsavíkur í dag →

Kalkvik á Skjálfanda

IMO 9341172. Kalkvik. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Kalkvik kom til hafnar á Húsavík síðdegis í dag og lagðist að Bökugarði. Skipið siglir undir færeyskum fánað og með heimahöfn í Þórshöfn, var smíðað í Þýskalandi árið 2007. Kalkvik er 5,325 GT að stærð, lengd þess er 114 metrar og breiddin 16 metrar. IMO 9341172. Kalkvik. … Halda áfram að lesa Kalkvik á Skjálfanda →

Ronja Fjord

IMO 9646405. Ronja Fjord ex Oyfjord. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023.. Ronja Fjord kom til Húsavíkur í morgun en skipið er í seiðaflutningum frá Kópaskeri austur á firði. Ronja Fjord var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2014 og hét upphaflega Oyfjord. Skipið, sem siglir undir norskum fána og er með heimahöfn í Haugasundi. Það … Halda áfram að lesa Ronja Fjord →

Mississippiborg á Skjálfanda

IMO: 9207508. Mississippiborg ex MSC Poland. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hollenska flutningaskipið Mississippiborg kom til Húsavíkur í morgunsárið en skipið er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið, sem var smíða árið 2000, er 6,540 GT að stærð. Lengd þess er 133.55 metrar og breiddin 16,5 metrar. Heimahöfn Mississippiborg er Delfzijl. IMO: 9207508. Mississippiborg ex MSC Poland. … Halda áfram að lesa Mississippiborg á Skjálfanda →

Edmy á Skjálfanda

IMO 9263540. Edmy ex Esaro. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Edmy kom inn á Skjálfanda í kvöld eftir rúmlega sex sólahringa siglingur frá Bordeaux í Frakklandi. Skipið, sem siglir undir Portúgölsku flaggi með heimahöfn á Madeira, er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Edmy var smíðað í Hollandi árið 2002 og er 4,938 GT að … Halda áfram að lesa Edmy á Skjálfanda →