IMO 8918461. Wilson Saga ex Borealnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Saga kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum þar sen nú er verið að skipa upp hráefnisfarmi fyrir kísliver PCC á Bakka. Wilson Saga var smíðað árið 1998 og siglir undir fána Kýpur með heimahöfn í Limasol. Skipið er 113 metra … Halda áfram að lesa Wilson Saga kom til Húsavíkur í morgun
Flokkur: Flutningaskip
Snekkjan A og Samskip Hoffell á Eyjafirði
IMO 1012141. A og IMO 9196943. Samskip Hoffell mætast á Eyjafirði. Ljósmynd Örn Stefánsson 2021. Örn Stefánsson tók þessa mynd síðdegis í dag þegar lystisnekkjan A og flutningaskipið Samskip Hoffell mættust á Eyjafirði. Í Fréttablaðinu í dag segir m.a svo frá snekkjunni: Nafn snekkjunnar er A og var henni hleypt af stokkunum árið 2015. Hún … Halda áfram að lesa Snekkjan A og Samskip Hoffell á Eyjafirði
Blue Sapphire kom til Straumsvíkur í dag
IMO 9877339. Blue Sapphire. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Súrálsskipið Blue Sappphire kom til Straumsvíkur í dag en þetta 180 metra langa skip naut aðstoðar tveggja hafnsögubáta við að komast að bryggju. Skipið sem er 30 metra breitt og mælist 23,703 GT að stærð. Það var smíðað árið 2020 og siglir undir fána Panama. IMO 9877339. … Halda áfram að lesa Blue Sapphire kom til Straumsvíkur í dag
Wilson Nanjing við Bökugarðinn í morgun
IMO 9431018. Wilson Nanjing. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Nanjing kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar nú er verið að skipa upphráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skipið kemur hingað en síðast var það hér fyrir tæpu ári. Wilson Nanjing var smíðað árið … Halda áfram að lesa Wilson Nanjing við Bökugarðinn í morgun
Falksea kom til Húsavíkur í morgun
IMO 9250426. Falksea og Sleipnir á Skjálfanda í morgun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Norska flutningaskipið Falksea kom með saltfarm til Húsavíkur núna á níunda tímanum og fór hafnsögubáturinn Sleipnir með lóðs um borð. Falksea er 90 metra langt og 14 metra breytt. Mælist 2,999 GT að stærð. Smíðað árið 2002 og hét upphaflega Arklow Rambler. Falksea … Halda áfram að lesa Falksea kom til Húsavíkur í morgun
Lagarfoss kom til Húsavíkur í dag
IMO 9641314. Lagarfoss. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Lagarfoss, skip Eimskipafélgsins, kom til Húsavíkur í dag og lagðist að Bökugarðinum. Lagarfoss var smíðaður árið 2014 og er 141 metrar að lengd. Breidd hans er 23 metrar og hann mælist 10,106 GT að stærð. Lagarfoss siglir undir færeysku flaggi með heimahöfn í Þórshöfn. IMO 9641314. Lagarfoss. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Lagarfoss kom til Húsavíkur í dag
Tukuma Arctica
IMO: 9822865. Tukuma Arctica í Sundahöfn. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Magnús Jónsson tók þessar myndir í gærmorgun þegar Tukuma Arctica, gámaflutningaskip grænlenska skipafélagsins Royal Arctic Line, kom að bryggju í Sundahöfn . Tukuma Arctica var smíðað í Kína og er samskonar skip og Dettifoss og Brúarfoss sem Eimskip lét smíða þar. Skipið er 179 metra langt, … Halda áfram að lesa Tukuma Arctica
Systurskipin Dettifoss og Brúarfoss saman í höfn
Systurskipin Dettifoss og Brúarfoss saman í Sundahöfn. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Systurskipin Dettifoss og Brúarfoss voru samtímis í Sundahöfn á dögunum og tók Magnús Jónsson þessar myndir við það tækifæri. IMO 9822853. Dettifoss.IMO: 9822841. Brúarfoss. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Systurskipin Dettifoss og Brúarfoss saman í höfn
Hekla
IMO 7383114. Hekla ex Vela. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Hekla kemur hér til Húsavíkur um árið en Ríkisskip gerðir það út til strandflutninga við Ísland. Skipið var í eigu Ríkissjóðs Íslands og keypt hingað til lands árið 1984, þá tíu ára gamalt. Skipið hafði þá verið hér í leigu frá árinu 1981 og siglt á … Halda áfram að lesa Hekla
Keilir á Hornafirði
2946. Keilir. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2020. Sigurður Davíðsson tók þessa mynd í vikunni þegar olíuskipið Keilir kom til Hafnar í Hornafirði. Keilir er í eigu Olíudreifingar og var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hann kom til landsins í fyrra, nánar tiltekið í febrúarmánuði. Keilir, sem leysti Laugarnes af hólmi í olíuflutningunum, siglir undir íslensku … Halda áfram að lesa Keilir á Hornafirði









