Tu­uga­alik

IMO:9922897. Tuugaalik GR-6-10. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Græn­lenski frysti­tog­ar­inn Tu­uga­alik GR-6-10 kom til Hafnarfjarðar á dögunum en þar landar togarinn reglulega. Togarinn, sem er nýr og glæsilegur eins og lesa má um hér, var nokkuð laskaður að sjá en hann  rakst á borga­rís­jaka í mik­illi þoku við veiðar milli Græn­lands og Íslands.  Lesa nánar um … Halda áfram að lesa Tu­uga­alik

Wilson Clyde kom í dag

IMO 9178458. Wilson Clyde ex Admiral Sun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Clyde kom til Húsavíkur nú undir kveld og það ekki í fyrsta skipti. Skipið, sem er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka, var smíðað í Slóvakíu árið 1998 og hét upphaflega og til októbermánaðar 2001 Dutch Trader. Síðan Admiral Sun til haustsins … Halda áfram að lesa Wilson Clyde kom í dag

Cuxhaven kom til Akureyrar í dag

IMO 9782778. Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Það líður að sjö árum frá því við Haukur Sigtryggur tókum okkur far með Fanney EA 28 út á Eyjafjörð og til móts við Cuxhaven NC 100 sem þá var að koma í fyrsta skipti til Akureyrar. Það var í nóvember árið 2017 og ég hef … Halda áfram að lesa Cuxhaven kom til Akureyrar í dag

Seir M-104-H kom til Reykjavíkur í dag

IMO 9827176. Seir M-104-H. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norski línuveiðarinn Seir M-104-H frá Álasundi kom til hafnar í Reykjavík nú síðdegis. Í Reykjavík fara fram áhafnaskipti en skipið hefur verið að veiðum við Grænland. Seir var smíðaður árið 2018 og mælist 1,911 Gt að stærð. Lengd skispisn er 53.1 metrar og breidd þess 15,4 metrar. … Halda áfram að lesa Seir M-104-H kom til Reykjavíkur í dag

Østerfjord við bryggju í Reykjavík

LGDO. Østerfjord VL-101-AV. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Norska skipið Østerfjord VL-101-AV lá við bryggju í Reykjavík í vikunni og tók Maggi Jóns þessa mynd. Þetta glæsilegt skip, sem smíðað var í Tyrklandi, er útbúið til línu- og dragnótaveiða. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on … Halda áfram að lesa Østerfjord við bryggju í Reykjavík

Þrjú fyrrum íslensk skip í Þórshöfn

Fiskiskip við bryggju í Þórshöfn. Ljósmynd Aðalsteinn Árni Baldursson 2024. Á þessari mynd Aðalsteins Árna Baldurssonar síðan um síðustu helgi gefur að líta fiskiskip við bryggju í Þórshöfn í Færeyjum. Þrjú þessara skipa hafa verið í íslenska flotanum og þar af tvö smíðuð fyrir Íslendinga. Hægra megin við bryggjuna er Vestmenningur sem áður hét Margrét … Halda áfram að lesa Þrjú fyrrum íslensk skip í Þórshöfn

Ný Clepopatra 36 til Noregs

Varde VL-94-AV. Ljósmynd Trefjar 2024. Útgerðarfélagið Tøkje Båt AS í Austevoll í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það er Ole Tøkje sem stendur að útgerðinni en hann verður jafnframt skipstjóri á bátnum. Nýj báturinn heitir Varde og er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 … Halda áfram að lesa Ný Clepopatra 36 til Noregs