1398. Sæljón SU 104. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1992. Sæljón SU 104 er hér að toga á rækjuslóðinni árið 1992 en báturinn var gerður út af Friðþjófi hf. á Eskifirði. Báturinn, sem var 142 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Friðþjóf í Slippstöðinni á Akureyri og afhentur árið 1974. Hann var yfirbyggður í Slippstöðinni árið 1980. … Halda áfram að lesa Sæljón SU 104
Flokkur: Bátar
Wilson North kom til Húsavíkur
IMO 9430947. Wilson North. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Wilson North kom til hafnar á Húsavík nú undir kvöld og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem er 123 metrar á lengd og 16 metra breitt, kom með trjáboli til PCC á Bakka. Það mælist 6,118 GT að stærð. Wilson North var smíðað árið 2010 og siglir undir … Halda áfram að lesa Wilson North kom til Húsavíkur
Geir ÞH 150
462. Geir ÞH 150 ex Eskey SF 54. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1992. Geir ÞH 150 frá Þórshöfn er hér á siglingu árið 1992, sennilega við Langanes. Geir ÞH 150 hét áður Eskey SF 54 en upphaflega Glófaxi NK 54. Smíðaður í Danmörku árið 1955 fyrir Sveinbjörn Á. Sveinsson í Neskaupstað. Hann átti bátinn til ársins 1969 … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150
Hrímbakur EA 306
1473. Hrímbakur EA 306 ex Bjarni Herjólfsson ÁR 200. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1991. ÚA togarinn Hrímbakur EA 306 er hér á miðunum árið 1991 en myndina tók Olgeir Sigurðsson. Togarinn hét upphaflega Bjarni Herjólfsson ÁR 200 og var smíðaður í Póllandi árið 1977. Hrímbakur EA 306 var 488 brl. að stærð búinn 2200 hestafla Sulser aðalvél. … Halda áfram að lesa Hrímbakur EA 306
Aldey á toginu
1245. Aldey ÞH 110 ex Stokksey ÁR 50. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1994. Rækjubáturinn Aldey ÞH 110 á toginu en hún var gerð út af Höfða hf. á Húsavík. Báturinn var smíðaður árið 1972 á Akureyri fyrir Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og Erling Pétursson í Vestmannaeyjum. Hann hét upphaflega Surtsey VE 2. Í upphafi mældist hann 105 … Halda áfram að lesa Aldey á toginu
Geiri Péturs
1872. Geiri Péturs ÞH 344 ex Skúmur ÍS 322. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1997. Siggi Valli föðurbróðir minn hefði orðið áttræður í dag en hann lést haustið 2005. Það er því tilvalið að birta myndir af einu skipanna sem hann gerði út undir nafninu Geiri Péturs ÞH 344. Þær koma úr myndasafni Olgeirs sonar hans sem … Halda áfram að lesa Geiri Péturs
Páll Jónsson
2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Línuskipið Páll Jónsson GK 7 er hér á útleið frá Grindavík á dögunum en myndina tók Jón Steinar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution
Hrafn GK 111 farinn áleiðis í pottinn
1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Síðdegis í gær 11. maí, á lokadegi vetrarvertíðar, sigldi línuskipið Hrafn GK 111 út frá Grindavík áleiðis til Ghent í Belgíu þar sem hann fer í pottinn víðfræga. Hrafn GK 111 hét upphaflega Gullberg VE 292 og var smíðaður hjá Baatservice Verft A/S … Halda áfram að lesa Hrafn GK 111 farinn áleiðis í pottinn
Stefán Rögnvaldsson HU 345
616. Stefán Rögnvaldsson HU 345 ex Stefán Rögnvaldsson EA 345. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Stefán Rögnvaldsson HU 345 við bryggju á Húsavík sumarið 2009 en þá stundaði báturinn úthafsrælkjuveiðar úti fyrir norðurlandi. Báturinn hét upphaflega Jón Guðmundsson KE 4 og var smíðaður í Þýskalandi 1960 Hér má lesa nánar um bátinn en útgerðarfélagið Stefán Rögnvaldsson ehf. var … Halda áfram að lesa Stefán Rögnvaldsson HU 345
Ný Lilja ÞH 21
6969. Lilja ÞH 21 ex Manni NS 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarrsson 2022. Strandveiðibáturinn Lilja ÞH 21 kom til Húsavíkur í gærkveldi eftir siglingu frá Akureyri. Bjarni Eyjólfsson keypti bátinn frá Vopnafirði í fyrra en þar bar hann nafnið Manni NS 50. Lilja er af Sómagerð, smíðuð hjá Bátasmiðju Guðmundar hf. í Hafnarfirði árið 1987. Báturinn … Halda áfram að lesa Ný Lilja ÞH 21









