Fanney ÞH 130

1445. Fanney ÞH 130. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Fanney ÞH 130, var upphaflega í eigu Sigurbjörns Kristjánssonar, Sigtryggs Kristjánssonar og Ívars Júlíussonar á Húsavík. Fanney, sem er 22 brl. að stærð, var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri og afhent 1. október árið 1975. Þegar þarna var komið, upp úr 1990, var Fanney í eigu Ólafs Ármanns … Halda áfram að lesa Fanney ÞH 130 →

Geirfugl GK 66

88. Geirfugl GK 66 ex Héðinn ÞH 57. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geirfuglinn úr Grindavík að manúera við Suðurgarðinn á Húsavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar en báturinn var þetta sumar á úthafrækjuveiðum úti fyrir Norðurlandi. Upphaflega Héðinn ÞH 57 frá Húsavík og var smíðaður í Noregi árið 1960. Hér má lesa nánar um bátinn sem … Halda áfram að lesa Geirfugl GK 66 →

Austurborg GK 91

1075. Austurborg GK 91 ex Austurborg SH 95. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Austurborg GK 91 hét upphaflega Hásteinn ÁR 8 frá Stokkseyri og var smíðaður árið 1969 í Skipavík h/f í Stykkishólmi. Báturinn fór í skiptum til Vestmannaeyja upp úr 1990 fyrir Örn VE 244 sem heitir Hásteinn enn þann dag í dag. Hann fékk nafnið Andri VE 244 … Halda áfram að lesa Austurborg GK 91 →

Óli Hall HU 14

67. Óli Hall HU 14 ex Hafberg GK 377. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Hér lætur Óli Hall HU 14 úr höfn í Grindavík í marsmánuði árið 2006 en þar átti báturinn áður lengi heimahöfn. Báturinn, sem smíðaður var fyrir Gunnvöru hf. í Noregi 1962, hét upphaflega Guðrún Jónsdóttir ÍS 267 frá Ísafirði en lengi vel Hafberg GK 377 … Halda áfram að lesa Óli Hall HU 14 →