2055. Birgir RE 323. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Birgir RE 323 kemur hér að landi í Sandgerði um árið en hann var í eigu Svans Jónssonar í Reykjavík. Báturinn, sem er 12 brl. að stærð, var smíðaður í Noregi árið 1989. Frá árinu 2004 bar Birgir skráningarnar ÁR 323, GK 263 og ÞH 323 en árið … Halda áfram að lesa Birgir RE 323
Flokkur: Bátar
FISK Seafood leigir dragnótabát
2323. Hafborg EA 242 ex Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Héraðsfréttablaðið Feykir greinir frá því að FIS Seafood á Sauðárkróki hafi tekið dragnótabát á leigu í eitt ár. Um er að ræða Hafborgu EA 242 sem legið hefur við bryggju frá því ný Hafborg kom í flotann í árslok 2018. Báturinn var smíðaður … Halda áfram að lesa FISK Seafood leigir dragnótabát
Meira af Helguvík ÁR 20
784. Helguvík ÁR 20 ex Helgi Jónasson ÁR 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var eins og mig minnti, ég átti mynd af Helguvík ÁR 20 á siglingu og hana fann ég rétt í þessu. Um bátinn má lesa betur hér en myndin verður látin duga með þessari færslu. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Meira af Helguvík ÁR 20
Helguvík ÁR 20
784. Helguvík ÁR 20 ex Helgi Jónasson ÁR 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggur Helguvík ÁR 20 utan á Jóhönnu ÁR 206 í Þorlákshafnarhöfn um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Bátnum var gerð góð skil hér á síðunni á dögunum en myndinni við þá færslu hét hann Sigmundur ÁR 20. Upphaflega Reykjanes GK 50 með … Halda áfram að lesa Helguvík ÁR 20
Hafsúlan HF 77
1213. Hafsúlan HF 77 ex Látravík BA 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafsúlan HF 77 er hér í slipp um árið en báturinn bar þetta nafn árin 1996-1997. Báturinn hét upphaflega Heimaey VE 1. Smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Sigurð Georgsson skipstjóra og Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. árið 1972. Báturinn, sem upphaflega var 105 brl. að … Halda áfram að lesa Hafsúlan HF 77
Pétur Þór BA 44
1491. Pétur Þór BA 44 ex Hringur HU 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Pétur Þór BA 44 er 21 brl. að stærð, smíðaður í Skipasmíðastöð Jóns Jónassonar við Elliðaárvog í Reykjavík árið 1977. Báturinn var smíðaður fyrir Bolvíkinga og hét upphaflega Páll Helgi ÍS 142. Ári síðar var hann kominn til Bíldudals þar sem hann fékk … Halda áfram að lesa Pétur Þór BA 44
Sigmundur ÁR 20
784. Sigmundur ÁR 20 ex Hafliði ÁR 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Árið er 1982, vetrarvertíð er í fullum gangi og Sigmundur ÁR 20 kemur hér að landi í Þorlákshöfn. Báturinn hét upphaflega Reykjanes GK 50 með heimahöfn í Hafnarfirði en hann var smíðaður árið 1954 þar í bæ. Nánar tiltekið í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. … Halda áfram að lesa Sigmundur ÁR 20
Draupnir ÁR 21
1171. Draupnir ÁR 21 ex Leifur Halldórsson SH 217. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Draupnir ÁR 21 við bryggju í Þorlákshöfn sem var síðasta heimahöfn bátsins meðan hann var á íslenskri skipaskrá. Um bátinn, sem upphaflega hét Skálafell ÁR 20 á íslenskri skipaskrá, má lesa hér. Draupnir var seldur til Rússlands árið 2007 þar sem hann … Halda áfram að lesa Draupnir ÁR 21
Smári ÞH 59
778. Smári ÞH 59 ex Smári TH 59. Ljósmynd úr einkasafni. Smári ÞH 59 er hér með síldarnótina á síðunni en myndina tók Óskar Þórhallsson. Smári var smíðaður í Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar hf. árið 1949 og var 63 brl. að stærð. Hann var smíðaður fyrir Vísi hf. Húsavík sem gerði bátinn út til ársins 1965 en … Halda áfram að lesa Smári ÞH 59
Margrét GK 9 við bryggju
3020. Margrét GK 9. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Hér gefur að líta Margréti GK 9 við bryggju í Njarðvík en Maggi Jóns tók myndina í gær. Margrét kom með flutningaskipi til landsins á dögunum en hún var smíðuð í Tyrklandi fyrir Skipasmíðastö Njarðvíkur hf. sem mun klára bátinn en kaupandi er Stakkavík ehf. í Grindavík. … Halda áfram að lesa Margrét GK 9 við bryggju









