Selma

Selma ex Njörður. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þráinn Þráinsson siglir hér Selmu innan hafnar á Húsavík um árið og gott ef þetta er ekki Huginn Ágústsson bróðursonur hans sem situr út í stjór. Selma, sem er tæplega tveggja tonna súgbyrðingur úr furu og eik, var smíðuð árið 1954 af Jóhanni Sigvaldasyni bátasmið á Húsavík. Magnús Bjarnason … Halda áfram að lesa Selma

Sigurgeir Sigurðsson ÍS 533

1228. Sigurgeir Sigurðsson ÍS 533 ex Siggi gamli BA 214. Ljósmynd Hafþór Hreiððarsson. Sigurgeir Sigurðsson RE 533 liggur hér í Þorlákshafnarhöfn um árið en báturinn hét upphaflega Kolbeinn í Dal ÍS 82. Hann var smíðaður 1972 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd og var með heimahöfnin Súðavík. Báturinn, sem var 22 brl. að stærð, var … Halda áfram að lesa Sigurgeir Sigurðsson ÍS 533

Knútur RE 22

284. Knútur RE 22 ex Haförn GK 120. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Netabáturinn Knútur RE 22 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn á vetrarvertíð í lok síðustu aldar. Knútur hét upphaflega Anna ÓF 7, smíðuð fyrir Ólafsfirðinga í Slippstöðinni á Akureyri árið 1961. Báturinn, sem var 20 brl. að stærð, var seldur til Hafnarfjarðar árið 1984 … Halda áfram að lesa Knútur RE 22

Sigrún ÍS 900

1739. Sigrún ÍS 900 ex Jarvsaar. Ljósmynd Hafþór Hreiðasson Sigrún ÍS 900 liggur hér við bryggju hjá skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi. Í 3 tbl. Ægis 1988 segir m.a: 14. ágúst 1986 kom nýtt fiskiskip til Ísafjarðar, m/s Sigrún ÍS 900, sem keypt var notað frá Finnlandi. Skip þetta, sem áður hét Jarvsaar, er smíðað hjá Valmet Oy, Kotka Shipyard, Kotka í Finnlandi árið 1979 (afhent í mars) og er … Halda áfram að lesa Sigrún ÍS 900

Viðar ÞH 17

1353. Viðar ÞH 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Viðar ÞH 17 var smíðaður 1973 hjá Básum hf. í Hafnarfirði fyrir Hólmstein Helgason hf. á Raufarhöfn. Í 6 tbl. Ægi 1974 sagði m.a:  15. febrúar afhentu Básar h.f., Vestmannaeyjum, nýsmíði nr. 1, sem er 19 rúmlesta eikarfiskiskip. Fiskiskip þetta, Viðar ÞH 17, er í eigu Hólmsteins Helgasonar … Halda áfram að lesa Viðar ÞH 17

Múlafoss og Eyborg

Múlafoss - 2190.Eyborg EA 59. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Múlafoss og Eyborgina úr Hrísey við hafnargarðinn á Húsavík sem kallaður var en heitir Norðurgarður. Myndin var tekin 1994 eða 1995 en Eyborg var á úthafsrækju og rótfiskaði undir skipsstjórn Eiríks Sigurðssonar. Ef ég man rétt. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Múlafoss og Eyborg