Hákon ÞH 250 í Krossanesi

1059. Hákon ÞH 250 ex heimir SU 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hákon ÞH 250 er hér að landa loðnu í Krossanesi um árið en hann hét upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði. Heimir var smíðaður fyrir Varðarútgerðina hf. í Noregi árið 1967 og mældist 363 brl. að stærð. Gjögur hf. á Grenivík keypti skipið árið … Halda áfram að lesa Hákon ÞH 250 í Krossanesi →

Nausti NK 97

1115. Nausti NK 97 ex Sigrún ÍS 113. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Nausti NK 97 var gerður út frá Neskaupstað á árunum 1990 - 1992 en upphaflega hét hann Kópur SU 154 frá Reyðarfirði. Báturinn var smíðaður árið 1970 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði og var 38 brl. að stærð. Kópur var seldur til … Halda áfram að lesa Nausti NK 97 →

Hafnarröst ÁR 250

249. Hafnarröst ÁR 250 ex Höfrungur II ÁR 250. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafnarröst ÁR 250 hét upphaflega Höfrungur III AK 250 frá Akranesi. Höfrungur III, sem var 267 brl. að stærð, var smíðaður fyrir fyrir Harald Böðvarsson & co á Akranesi árið 1964. Smíðin fór fram hjá skipasmíðastöðinni Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi. … Halda áfram að lesa Hafnarröst ÁR 250 →

Wilson North siglir inn Hvalfjörð

IMO 9430947. Wilson North. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson North siglir hér inn Hvalfjörðinn á dögunum á leið sinni að Grundartanga. Skipið, sem er 123 metrar á lengd, 16 metra breitt og mælist 6,118 GT að stærð. Wilson North var smíðað árið 2010 og siglir undir Maltnesku flaggi með heimahöfn í Walletta. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Wilson North siglir inn Hvalfjörð →

Cape Race á Húsavík

IMO 5402198. Cape Race. Ljósmynd Aðalsteinn Árni Baldursson 2024. Leiðangursskipið Cape Race kom til Húsavíkur í vikunni og tók Aðalsteinn Árni Baldursson þessa mynd. Cape Race var smíðaður sem úthafstogari 1963 í Kanada. Stærð skipsins er 323 GT og lengd þess 38 metrar. Breiddin átta metrar. Cape Race siglir undir flaggi Cook Islands. Hér má … Halda áfram að lesa Cape Race á Húsavík →

Fiskibátar í Hondaribbia

Fiskibátar í höfninni í Hondaribbia sumarið 2014. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta nokkra fiskibáta í höfninni í Hondaribbia á Spáni en bærinn er við mynni Bidasoa árinnar, í Gipuzkoa, í Baskalandi á Spáni. Myndin var tekin sumarið 2014 er við dvöldum í Hendaye handan Irun árinnar, s.s í Frakklandi og gerðum okkur nokkrar … Halda áfram að lesa Fiskibátar í Hondaribbia →

Sigurfari VE 138

1213. Sigurfari VE 138 ex Náttfari RE 75. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sigurfari VE 138 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum um árið en hann hét upphaflega Heimaey VE 1. Báturinn var smíðaður árið 1972 í Slippstöðinn á Akureyri fyrir Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og Sigurð Georgsson skipstjóra. Báturinn, sem upphaflega var 105 brl. að stærð, var … Halda áfram að lesa Sigurfari VE 138 →