242. Geir Goði GK 220 ex Sæunn GK 220. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geir goði GK 220 öslar hér til hafs um árið eftir að hafa landað rækju á Húsavík. Geir Goði GK 220 var í eigu Miðness hf. en hét upphaflega Guðbjörg GK 220 og var í eigu Arnar hf. Báturinn var smíðaður í Marstrands … Halda áfram að lesa Geir goði
Flokkur: Bátar
Haförn SK 17
100. Haförn SK 17 ex Haförn ÁR 115. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér lætur Haförn SK 17 úr höfn á Húsavík um ári eftir að hafa legið af sér norðanbrælu. Það var rækjuverksmiðjan Dögun á Sauðárkróki sem áttii bátinn og gerði út tul úthafsrækjuveiða. Upphaflega Hoffell SU 80 sem smíðað var í Noregi árið 1959. Síðar Fagurey … Halda áfram að lesa Haförn SK 17
Ögmundur RE 94
212. Ögmundur RE 94 ex Skagaröst KE 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ögmundur RE 94 hét upphaflega Sæþór ÓF 5 og var smíðaður árið 1960 í Risör í Noregi. Báturinn var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Ólafsfjarðar h.fá Ólafsfirði en hér má lesa nánar um bátinn. Nafnið Ögmundur fékk báturinn vorið 1990 þegar Ingimundur hf. í Reykjavík keypti … Halda áfram að lesa Ögmundur RE 94
Þinganes SF 25.
2040. Þinganes SF 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Þinganes SF 25 frá Hornafirði kemur hér til hafnar á Húsavík í septembermánuði árið 2012. Þinganes er eitt fjögurra systurskipa sem smíðuð voru á sínum tíma fyrir Íslendinga hjá Carnave Eir Navais Sa smíðastöðinni í Aveiro í Portúgal. Árið 2021 seldi Skinney – Þinganes bátinn, sem þá … Halda áfram að lesa Þinganes SF 25.
Gunnar Hámundarson GK 357
500. Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Gunnar Hámundarson GK 357 kemur hér að landi í Keflavík um árið, ca 1985 eða 6. Báturinn var með heimahöfn í Garði en hann var smíðaður fyrir Halldór Þorsteinsson ofl. árið 1954. Gunnar Hámundarson var með smíðanúmer 1 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og er 53 brl. að stærð Níels Árni … Halda áfram að lesa Gunnar Hámundarson GK 357
Fanney ÞH 130
1445. Fanney ÞH 130. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Fanney ÞH 130 kemur hér að landi á Húsavík um árið en þarna var hún í eigu Ólafs Ármanns Sigurðssonar á Húsavík. Fanney var upphaflega í eigu Sigurbjörns Kristjánssonar, Sigtryggs Kristjánssonar og Ívars Júlíussonar á Húsavík. Fanney, sem er 22 brl. að stærð, var smíðuð í Slippstöðinni á … Halda áfram að lesa Fanney ÞH 130
Hinni á Skjálfanda
1547. Hinni ÞH 70 ex Sveinn Sveinsson BA 325. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Hinni ÞH 70 er hér á siglingu á Skjálfanda í júní 2005 en hann var þá við dragnótaveiðar. Báturinn hét upphaflega Neisti HU 5 og var smíðaður í Básum hf. í Hafnarfirði árið 1979. Hann er 24 brl. að stærð og heitir … Halda áfram að lesa Hinni á Skjálfanda
Stjörnutindur SU 159
972. Stjörnutindur SU 159 ex Pétur Ingi KE 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Stjörnutindur SU 159 liggur hér við bryggju á Akureyri um árið sem mig minnir að hafi verið 1986. Um Stjörnutind má lesa nánar hér en hann var einn átján báta sem raðsmíðaðir voru fyrir Íslendinga í Boizenburg í Austur - Þýskalandi. Með … Halda áfram að lesa Stjörnutindur SU 159
Sæfaxi VE 25
833. Sæfaxi VE 25 ex Faxi ÁR 25. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sæfaxi VE 25 hét upphaflega Faxi GK 95 og var smíðaður í Innri Njarðbík árið 1939. Hann var 26 brl. að stærð. Árið 1949 varð báturinn Faxi ÍS 118 með heimahöfn á Flateyri og þrem árum síðar var hann kominn til Stokkseyrar. Þá fékk … Halda áfram að lesa Sæfaxi VE 25
Eldhamar GK 13
1115. Eldhamar GK 13 ex Nausti NK 97. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eldhamar GK 13 liggur hér við bryggju í Grindavík um árið en þetta nafn bar báturinn í nokkur ár á tíunda áratug síðustu aldar. Upphaflega Kópur SU 154 154 frá Reyðarfirði og var smíðaður árið 1970 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Lesa … Halda áfram að lesa Eldhamar GK 13









