Freyja II ÍS 401 við bryggju á Súgandafirði

525. Freyja II ÍS 401. Ljósmynd Sigurður Jóhannesson. Freyja II ÍS 401 er hér við bryggju á Suðureyri við Súgandafjörð upp úr 1960. Hvaða bátur er utan á honum hef ég ekki upplýsingar um. Freyja II ÍS 401 var smíðuð 1954 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði fyrir Fiskiðjuna Freyju hf. Suðureyri Súgandafirði. Báturinn … Halda áfram að lesa Freyja II ÍS 401 við bryggju á Súgandafirði

Jumbo Jubilee kominn með skrokkana til Brattvåg

Jumbo Jubilee við bryggju í Brattvåg. Ljósmynd Gjögur hf. 2019. Flutningaskipið Jumbo Jubilee kom til hafnar í Brattvåg í Noregi í gærmorgun með skrokkana fjóra sem smíðaðir voru í Víetnam fyrir íslenskar útgerðir. Skipið flutti Vörð ÞH 44, Áskel ÞH 48, Steinunni SF 10 og Þinganes SF 25 þessa löngu leið en siglingin hófst þan … Halda áfram að lesa Jumbo Jubilee kominn með skrokkana til Brattvåg

Guðbjörg GK 77 á leið í línuróður

2468. Guðbjörg GK 77 ex Guðbjörg GK 666. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Línubáturinn Guðbjörg GK 77 hélt í línuróður frá Grindavík sl. mánudgaskvöld og tók Jón Steinar þessar myndir þá. 2468. Guðbjörg GK 77 ex Guðbjörg GK 666. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Upphaflega hét báturinn, sem er í eigu Stakkavíkue ehf., Ársæll Sigurðsson HF 80 … Halda áfram að lesa Guðbjörg GK 77 á leið í línuróður

Halldór Jónsson SH 217

540. Halldór Jónsson SH 217. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Halldór Jónsson SH 217 er hér á landleið úr netaróðri á Breiðafirði um árið.  Báturinn var smíðaður 1961 á Akureyri fyrir Halldór Jónsson útgerðarmann í Ólafsvík. Hann var upphaflega mældur 96 brl. að stærð og var með 400 hestafla M.W.M aðalvél. 1966 var báturinn skráður í eigu Stakkholts hf. … Halda áfram að lesa Halldór Jónsson SH 217

Trausti ÍS 300

1170. Trausti ÍS 300. Ljósmynd Sigurður Jóhannesson. Á þessum myndum Sigurðar Jóhannessonar er Tausti ÍS 300 en myndirnar voru teknar árið 1972. Trausti ÍS 300 frá Suðureyri við Súgandafjörð var smíðaður í Stálvík árið 1971. Hann hafði smíðanúmer 16 hjá Stálvík og var smíðaður eftir teikningu Ágústs G. Sigurðssonar Í Morgunblaðinu þann 20. júní 1971 … Halda áfram að lesa Trausti ÍS 300

Kristín GK 457 lét úr höfn í Vestmannaeyjum í kvöld

972. Kristín GK 457 ex Kristín ÞH 157. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Línubáturinn Kristín GK 457 lét úr höfn í Vestmannaeyjum og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir við það tækifæri. Kristín ÞH 157 var smíðuð í Boizenburg í Austur-Þýskalandi 1965, hét upphaflega Þorsteinn RE 303.  972. Kristín GK 457 ex Kristín ÞH 157. Ljósmynd Hólmgeir … Halda áfram að lesa Kristín GK 457 lét úr höfn í Vestmannaeyjum í kvöld

Kristján Guðmundsson ÍS 77

1125. Kristján Guðmundsson ÍS 77 ex Palomar T-22-SA. Ljósmynd Sigurður Jóhannesson. Kristján Guðmundsson ÍS 77 kemur hér að landi á Suðureyri við Súgandafjörð en báturinn var keyptur þangað frá Noregi í lok árs 1970. Það var Útgerðarfélagið Óðinn hf. sem keypti bátinn sem var smíðaður hjá Einar S. Nielsen Mek. Verksted A/S í Harstad og … Halda áfram að lesa Kristján Guðmundsson ÍS 77

Ólafur Friðbertsson ÍS 34

256. Ólafur Friðbertsson ÍS 34. Ljósmynd Sigurður Jóhannesson. Ólafur Friðbertsson ÍS 34 siglir hér inn Súgandafjörðinn til hafnar á Suðureyri. Ólafur Friðbertsson ÍS 34 var smíðaður Flekkefjord í Noregi 1964 fyrir Súgfirðinga og sagði svo frá komu hans í Vesturlandi 28. apríl 1964: Á sumardaginn fyrsta kom nýr vélbátur til Súgandafjarðar, Ólafur Friðbertsson ÍS 34. … Halda áfram að lesa Ólafur Friðbertsson ÍS 34

Heiðrún ÍS 4 við síldarlöndun á Siglufirði

87. Heiðrún ÍS 4 ex Hafborg MB 76. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Heiðrún ÍS 4 er hér á mynd Hannesar Baldvinssonar að landa síld á Siglufirði. Báturinn hét upphaflega Hafborg MB 76, hann var smíðaður í Skipasmíðastöð KEA og sjósettur 6. maí árið 1944. Hafborg MB 76 var skráð 92 brl. að stærð búið 240 … Halda áfram að lesa Heiðrún ÍS 4 við síldarlöndun á Siglufirði