259. Nord GK 320 ex Jökull ÞH 259. Ljósmynd Ómar Erlingsson 2019. Jökull ÞH 259 hefur fengið nafnið Nord Gk 320 og er orðinn fallega rauður á litinn. Nord GK 320 fer til verkefna við Noreg eins og áður hefur komið fram, mun verða þjónustuskip við olíuiðnaðinn. Meðfylgjandi myndir tóku Ómar Erlingsson, einn eigenda bátsins … Halda áfram að lesa Jökull fékk nafnið Nord GK 320
Flokkur: Bátar
Slippurinn mun sjá um vinnsludekkin í Vestmannaey og Bergey
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Guðmundur Alfreðsson 2019. Slippurinn Akureyri og Bergur-Huginn dótturfélag Síldarvinnslunnar hafa gert samkomulag þar sem Slippurinn mun bera ábyrgð á vinnsludekkjum um borð í nýju ísfiskurunum Vestmannaey VE og Bergey VE. Skipin, sem smíðuð eru af norsku skipasmíðastöðinni Vard, eru 29 metrar að lengd og 12 metrar að breidd og taka … Halda áfram að lesa Slippurinn mun sjá um vinnsludekkin í Vestmannaey og Bergey
Svanur RE 45 í heimahöfn sumarið 1974
1029. Svanur RE 45 ex Esjar RE 400. Ljósmynd Leifur Hákonarson 1974. Hér liggur Svanur RE 45 í sinni heimahöfn sumarið 1974 og innan við hann liggja Hafrún ÍS 400 og Pétur Jónsson KÓ 50. Svanur RE 45 hét upphaflega Brettingur NS 50 og var smíðaður árið 1967 fyrir Tanga h/f á Vopnafirði í Flekkufirði … Halda áfram að lesa Svanur RE 45 í heimahöfn sumarið 1974
Vörður og Áskell komnir á flot í Brattavogi
2962.Vörður ÞH 44. Ljósmynd Gjögur hf. 2019. Togskipin Vörður ÞH 44 og Áskell ÞH 48 eru komin á flot í Brattavogi þangað sem flutningaskipið Jumbo Jubilee kom þau á dögunum. 2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Gjögur 2019. Lokið verður við smíði skipanna í Noregi, en þau eru hluti af sjö skipa raðsmíðaverkefni sem íslensk útgerðarfyrirtæki … Halda áfram að lesa Vörður og Áskell komnir á flot í Brattavogi
Kristbjörg ÞH 44 áður Kristjón Jónsson SH 77
1053. Kristbjörg ÞH 44 ex Kristjón Jónsson SH 77. Ljósmynd Pétur Jónasson. Síðasta myndin úr rammanum hans afa er af Kristbjörgu ÞH 44 sem upphaflega hét Kristjón Jónsson SH 77. Smíðaður í Skipavík fyrir Korra h/f í Ólafsvík árið 1967 en keyptur til Húsavíkur í byrjun árs 1969. Kaupendur voru Olgeir Sigurgeirsson og synir hans … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44 áður Kristjón Jónsson SH 77
Kristbjörg ÞH 44, sú fyrsta
541. Kristbjörg ÞH 44 ex Hallsteinn EA 130. Ljósmynd Pétur Jónasson. Hér kemur sú næsta úr rammanum hans afa en hún sýnir Kristbjörgu ÞH 44, þá fyrstu af fjórum. Báturinn var smíðaður í Danmörku 1934 og hét upphaflega Ægir GK 8, 22 brl. að stærð, og var úr Garðinum. Síðar hét hann Hersteinn ÁR, Hersteinn … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44, sú fyrsta
Njörður ÞH 44 við bryggju á Húsavík
699. Njörður ÞH 44 ex Njörður TH 44. Ljósmynd úr safni HH. Hér kemur fyrsta myndin af þrem sem héngu saman í ramma uppi á vegg hjá afa mínum, Olgeir Sigurgeirssyni útgerðarmanni á Húsavík. Hér sjáum við fyrsta bát þeirra Skálabrekkufeðga við bryggju á Húsavík. Njörð ÞH 44, sem þeir keyptu af Sigurbirni Sigurjónssyni ofl. … Halda áfram að lesa Njörður ÞH 44 við bryggju á Húsavík
Jón Finnsson GK 506
1283. Jón Finnsson GK 506 ex Havbas. Ljósmynd Leifur Hákonarson 1974. Jón Finnsson GK 506 liggur hér í höfn í Reykjavík sumarið 1974 og senn skal haldið í Norðursjóinn. Liggur utan á Sigurði RE 4. Jón Finnsson GK 506 var í eigu Gauksstaða h/f í Garði og var keyptur frá Noregi árið 1972. Hann var … Halda áfram að lesa Jón Finnsson GK 506
Við bryggju í Þorlákshöfn
Bátar við bryggju í Þorlákshöfn á níunda áratug 20. aldarinnar. Ljósmynd Ágúst Guðmundsson. Hér koma tvær myndir sem Ágúst Guðmundsson tók í Þorlákshöfn á níunda áratug síðustu aldar og sýna báta við bryggju. Á efri myndinni get ég mér til að séu eftirtaldir bátar, efst eru 542.Hólmsteinn ÁR 20, 925.Helguvík ÁR utan á. 670.Greipur SH … Halda áfram að lesa Við bryggju í Þorlákshöfn
Ásgeir RE 60 í Reykjavíkurhöfn sumarið 1974
1026. Ásgeir RE 60. Ljósmynd Leifur Hákonarson 1974. Ásgeir RE 60 liggur hér við bryggju í Reykjavík sumarið 1974 en þá klár til síldveiða í Norðursjó. Myndina tók Leifur Hákonarson. Ásgeir RE 60 var smíðaður fyrir Ísbjörninn h/f í Deest í Hollandi árið 1966. Í Morgunblaðinu 24. desember það ár sagði svo frá komu Ásgeirs … Halda áfram að lesa Ásgeir RE 60 í Reykjavíkurhöfn sumarið 1974









