Sturla seld til Grundarfjarðar

2444. Sturla GK 12 ex ex Smáey VE 444. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Fram kemur á vef Skessuhorns í dag að fiskvinnslufyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði hafi fest kaup á Sturlu GK 12. Þar segir jafnframt Sturla, sem mun leysa Hring SH 153 af hólmi, farir í slipp eftir helgina og eru kaupin gerð með … Halda áfram að lesa Sturla seld til Grundarfjarðar

Bjarni Sveinsson ÞH 322

1508. Bjarni Sveinsson ÞH 322 ex Björg Jónsdóttir ÞH 321. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Bjarni Sveinsson ÞH 322 hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 og var skipið smíðað í Slippstöðinni á Akureyri árið 1978. Þegar Langanes hf. keypti skipið frá Akranesi árið 1996 bar það nafnið Höfðavík AK 200 en fékk nafnið Björg Jónsdóttir ÞH 321. … Halda áfram að lesa Bjarni Sveinsson ÞH 322

Pia Glanz verður Hildur SH 777

IMO: 9826809. Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Í morgun kom til Hafn­ar­fjarðar nýr bátur sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku. Bát­ur­inn, sem ber nafnið Pia Glanz, mun fá nafnið Hildur SH 777 og kem­ur í stað Gunn­ars Bjarna­son­ar SH sem seld­ur hefur verið til FISK Sea­food á Sauðár­króki. Báturinn var smíðaður í … Halda áfram að lesa Pia Glanz verður Hildur SH 777

Margrét EA 710

2730. Margrét EA 710 ex Serene LK 297. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Margrét EA 710 liggur hér við bryggju á Akureyri þann24. október árið 2006. Samherji hf. hafði fyrr um árið keypt skipið frá Hjaltlandseyjum þar sem það bar nafnið Serene LK 297. Árið 2010 keypti Síldarvinnslan hf. Margrétina og nefndi Beiti NK 123. Síldarvinnslan … Halda áfram að lesa Margrét EA 710

Bjössi Sör og Haukur á Skjálfanda

1417. Bjössi Sör - 1292. Haukur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Hér kemur mynd frá siglingahátíðinni Sail Húsavík sem haldin var sumarið 2011. Bjössi Sör á landleið úr hvalaskoðun en Haukur tók þátt í siglingakeppni seglskipa. Það sést í stefni dönsku skonnortunnar Activ sem einnig tók þátt í keppninni. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Bjössi Sör og Haukur á Skjálfanda

Gullberg VE 292

2730. Gullberg VE 292 ex Gardar H-34-AV. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2014. Gullberg VE 292 kom á dögunum með síldarafla til löndunar í Vestmannaeyjum og tók Tryggvi þessa mynd af skipinu. Gullbergið var smíðað í Flekkefjørd í Noregi árið 1998, það er 71 metrar að lengd, 13 metra breitt og mælist 2,188 BT að stærð. Með því … Halda áfram að lesa Gullberg VE 292

Haförn SK 17

100. Haförn SK 17 ex Haförn ÁR 115. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér lætur Haförn SK 17 úr höfn á Húsavík um ári eftir að hafa legið af sér norðanbrælu. Það var rækjuverksmiðjan Dögun á Sauðárkróki sem áttii bátinn og gerði út tul úthafsrækjuveiða. Upphaflega Hoffell SU 80 sem smíðað var í Noregi árið 1959. Síðar Fagurey … Halda áfram að lesa Haförn SK 17