Skip Vísis hf. við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Jón Steinar tók þessa mynd í gær af skipum Vísis hf. við bryggju í Grindavík en þar hafa þau legið yfir hátíðarnar. Línubátarnir Pall Jónsson GK 7 og Sighvatur GK 57 með togskipið Jóhönnu Gísladóttur GK 357 á milli sín. Með því að … Halda áfram að lesa Vísisskipin í Grindavíkurhöfn
Author: Hafþór Hreiðarsson
Sigurður Ólafsson SF 44
173. Sigurður Ólafsson SF 44 ex Sigurður Sveinsson SH 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurður Ólafsson SF 44 kemur hér að bryggju á Eskifirði, annað hvort haustið 1984 eða 1986. Sigurður Ólafsson SF 44 hét upphaflega Runólfur SH 135 og hér má nánar lesa um bátinn sem gerður er út fá Höfn í Hornafirði. Með því að … Halda áfram að lesa Sigurður Ólafsson SF 44
Kópur ÁR 9
1171. Kópur ÁR 9 ex Heimir KE 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kópur ÁR 9 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn um árið en hann hét upphaflega Skálafell ÁR 20 á íslenskri skipaskrá. Báturinn var keyptur til landsins frá Noregi árið 1971, þá þriggja ára. Hann átti eftir að bera nöfnin Hegri KE 107 og Heimir … Halda áfram að lesa Kópur ÁR 9
Sigþór
185. Sigþór ÞH 100 ex Sigurpáll GK 375. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Sigþór ÞH 100 hét upphaflega Sigurpáll GK 375 og var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad A/B. í Marstrand í Svíþjóð. Hann kom til landsins í aprílmánuði 1963. Útgerðarfélagið Vísir hf.á Húsavík keypti bátinn árið 1977 eftir að hann hafði verið endurbyggður í Dráttarbraut Keflavíkur … Halda áfram að lesa Sigþór
Sædís SI 19
2419. Sædís SI 19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Sædís SI 19 kemur hér að landi á Skagaströnd sumarið 2006 en báturinn var smíðaður árið 2000. Árið 2006 var umdæmisstöfu bátsins breytt í HU 17 og heimahöfnin Skagaströnd. Frá árinu 2009 hefur báturinn verið á Snæfellsnesi undir nöfnunum Magnús Ingimarsson SH 301, Diddi Helga SH 179, … Halda áfram að lesa Sædís SI 19
Sigurbjörg VE 67
3018. Sigurbjörg VE 67 ex Sigurbjörg ÁR 67. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Sigurbjörg ÁR 67 hefur nú fengið einkennisstafina VE og heimahöfn í Vestmannaeyjum. Það er Ísfélagið hf. sem gerir togarann út en hann kom til landsins í lok júlímánaðar á þessu ári. Sigurbjörgin var smíðuð í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul í Tyrklandi og er … Halda áfram að lesa Sigurbjörg VE 67
Björg Jónsdóttir ÞH 321
586. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Langanes ÞH 321. Aðsend mynd. Hér er Björg Jónsdóttir ÞH 321, sú fyrsta af sjö sem Langanes gerði út á sínum tíma, komin með nýju brúnna sem sett var á bátinn á Húsavík. Báturinn sem var 76 brl. að stærð hét uppgaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð í … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321
Háberg GK 299
2644. Háberg GK 299 ex Antartic. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2005. Háberg GK 299 er hér á siglingu í febrúarmánuði árið 2005 en Samherji keypti skipið til landsins haustið áður. Hábergið, sem smíðað var 1979 og hét upphaflega Eldjárn, kom til Grindavíkur 1. desember 2004 eftir breytingar í Póllandi. Eldjárn var seldur til Írlands árið 1991 … Halda áfram að lesa Háberg GK 299
Börkur NK 122
2827. Börkur NK 122 ex Torbas Ljósmynd Börkur Kjartansson 2013. Börkur NK 122 sem hér um ræðir hét upphaflega Libas og var skipið smíðað í Noregi árið 2000. Það bar síðan nöfnin Staaløy og Torbas áður en Síldarvinnslan keypti það til Íslands árið 2012 og gaf því nafnið Börkur NK 122. Árið 2014 hafði Síldarvinnslan … Halda áfram að lesa Börkur NK 122
Gleðileg jól – Merry christmas – God jul – Feliz Navidas
Við Húsavíkurslipp á Þorláksmessu 2024. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Með þessari mynd sem tekin var á Húsavík í gær fylgir jólakveðja til allra þeirra sem sækja síðuna heim. Merry Christmas to you all who visit this site with thanks for stopping by. God jul og tusinde tak til alle dem, der besøger hjemmesiden. Feliz Navidad a todos los que … Halda áfram að lesa Gleðileg jól – Merry christmas – God jul – Feliz Navidas









