2617. Daðey GK 777. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Línubáturinn Daðey GK 77 frá Grindavík kemur hér að landi á Djúpavogi í júlímánuði árið 2004. Báturinn var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun í Njarðvík sama ár og er af gerðinni Gáski 1180. Í upphafi árs 2018 fékk báturinn nafnið Bergvík KE 22 en frá árinu 2022 hefur … Halda áfram að lesa Daðey GK 777
Author: Hafþór Hreiðarsson
Varðskipið Þór
2769. Þór. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Varðskipið Þór lónaði í stutta stund utan við Grindavík í gær og flaug Jón Steinar drónanum út yfir hann. Eftir stutta stund setti hann á fulla ferð vestur fyrir Reykjanes en Jón Steinar náði þessum myndum áður. 2769. Þór. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. Með því að smella … Halda áfram að lesa Varðskipið Þór
Pathway PD 165 kom til Vestmannaeyja með kolmuna
IMO 9763095. Pathway PD 165. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Skoska uppsjávarveiðiskipið Pathway PD 165 frá Peterhead kom til löndunar í Vestmannaeyjum í morgun en skipið var með um 2000 tonn af kolmuna. Eins og komið hefur fram á síðunni hefur Ísfélagið hf. fest kaup á skipinu sem verður afhent núna í maí. Seljandi er Lunar … Halda áfram að lesa Pathway PD 165 kom til Vestmannaeyja með kolmuna
Dintelborg kom til Húsavíkur í dag
IMO 9163685. Dintelborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hollenska flutningaskipið Dintelborg kom til Húsavíkur í dag með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíða hjá Van Diepen Shipyard í Waterhuizen í Hollandi árið 1999 og er 6,235 GT að stærð. Skipið er 133 metra langt og breidd þess er 14 metrar. Skipið hét upphaflega Dintelborg en árin … Halda áfram að lesa Dintelborg kom til Húsavíkur í dag
Ísborg ÍS 250
78. Ísborg ÍS 250 ex Vatneyri BA 238. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Ísborg ÍS 250 kemur hér til hafnar á Húsavík í ágústmánuði árið 2010 en hún landaði oft hér úthafsrækju. Ísborg hét upphaflega Hafþór NK 76 og var einn af tólf austur þýskum, svokölluðum tappatogurum, sem voru smíðuð í Stralsund fyrir Íslendinga. Hafþór var … Halda áfram að lesa Ísborg ÍS 250
Oddur á Nesi SI 76
2799. Oddur á Nesi SI 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Oddur á Nesi SI 76 var smíðaður á Siglufirði 2010 fyrir Útgerðarfélagið Nesið ehf. þar í bæ. Í maímánuði 2015 var hann orðinn ÓF 176, í eigu sömu útgerðar, og í apríl 2016 fær báturinn nafnið Örninn ÓF 176. Marver ehf. í Grindavík keypti bátinn … Halda áfram að lesa Oddur á Nesi SI 76
Kristey ÞH 25
1420. Kristey ÞH 25 ex Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson. Kristey ÞH 25 er hér við rækjuveiðar um árið en hún stundaði veiðar á innfjarðarrækju í Öxarfirði auk veiða á úthasfsrækju. Þá var hún einnig gerð út á dragnót meðan Höfði h/f átti hana. Báturinn var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1975 … Halda áfram að lesa Kristey ÞH 25
Ásbjörg og Ásdís
1487. Ásbjörg ST 9 - 1434. Ásdís ST 37 ex Kristín ÁR 101. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1993. Sumarið 1993 komu bátar vestan af Ströndum nokkrum sinnum til Húsavíkur og lönduðu þar úthafsrækju. Þar á meðal voru Ásbjörg ST 9 og Ásdís ST 37 sem gerðir voru út af Bassa ehf. á Hólmavík. Báðir bátarnir innlend … Halda áfram að lesa Ásbjörg og Ásdís
Kap VE 4
1062. Kap VE 4 ex Kap II VE 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Einhverju sinni kom Kap VE 4 til Húsavíkur og lá þar við bryggju um stund og þá var þessi mynd tekin. Kap hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 var smíðaður í Stálvík árið 1967 fyrir Þórð Óskarsson hf. á Akranesi. Hér má lesa … Halda áfram að lesa Kap VE 4
Bátar við bryggju á Húsavík
Bátar við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Öxarnúp ÞH 162 frá Raufarhöfn við bryggju á Húsavík og utan á honum er Ásgeir ÞH 198. Í fjarska má sjá Aron ÞH 105 og th. m.a Hauk, Haförn ÞH 26, Fram ÞH 62 og Von ÞH 54. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Húsavík









