Páll Jónsson GK 7 á útleið í dag

2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar Sæmundsson tók þessar myndir í dag þega Páll Jónsson GK 7 lét úr höfn í Grindavík eftir að hafa landað þar fullfermi. Aflinn var um 440-450 kör sem gerir um 140-145 tonn og fékkst í 5 lögnum. Uppistaða aflans var langa eða 190 … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 7 á útleið í dag

Margrét og Vilhelm Þorsteinsson

3038. Margrét EA 710 ex Christina S FR 224. - 2982. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Samherjaskipin Margrét EA 710 og Vilhelm Þorsteinsson EA 11 liggja hér við Oddeyrarbryggju en myndina tók ég um helgina. Margrét EA 710 er 2,411 BT að stærð, lengd skipsin er 72 metrar og breiddin 15 metrar … Halda áfram að lesa Margrét og Vilhelm Þorsteinsson

Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir

2350. Árni Friðriksson HF 200 - 3045. Þórunn Þórðardóttir HF 300. Ljósmynd Magnús Jónsson 2025. Maggi Jóns tók þessa mynd fyrir stundu þegar hið nýja hafrannsóknarskip Íslendinga, Þórunn Þórðardóttir HF 300, kom úr sínum fyrsta leiðangri. Fyrir var við bryggju í Hafnarfirði hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson HF 200 sem upphaflega var RE 200 og var smíðaður … Halda áfram að lesa Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir

Halldór afi KE 222

1546. Halldór afi GK 222 ex Halldór afi GK 222. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Á þessum myndum sem Jón Steinar tók í gær má sjá Halldór afa KE 222 á veiðislóðinni út af Straumsvík þar sem hann var við netaveiðar. Báturinn var smíðaður árið 1979 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd. Halldór afi … Halda áfram að lesa Halldór afi KE 222

Vestmannaey VE 54 landaði í Grindavík í gær

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Vestmannaey VE 54 kom til Grindavíkur í gær og landaði fullfermi sem fór til vinnslu hjá Vísi. Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Nor­egi. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. Með … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 landaði í Grindavík í gær

Hildur SH 777 við slippkantinn á Akureyri

3047. 3047. Hildur SH 777 ex Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hildur SH 777 er hér við slippkantinn á Akureyri í dag en Slippurinn Akureyri vinnur nú af krafti að smíði nýs vinnsludekks í bátinn. Báturinn sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku í fyrra hét Pia Glanz, var smíðaður í Vest­værf­tet i Hvi­desand í Dan­mörku árið … Halda áfram að lesa Hildur SH 777 við slippkantinn á Akureyri

Friðrik Sigurðsson ÁR að draga netin

1084. Friðrik Sigurðsson ÁR 17 ex Jóhann Friðrik ÁR 17. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í dag en þær sýna Friðrik Sigurðsson ÁR 17 þar sem hann var að draga netin úti fyrir Straumsvík. Það var ekki að sjá annað á myndunum en það væri mjög gott fiskirí og fiskurinn … Halda áfram að lesa Friðrik Sigurðsson ÁR að draga netin

Hálf öld síðan Kristbjörgin var afhent frá Skipavík

1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd úr safni Hreiðars Olgeirssonar. Um þessar mundir eru fimmtíu ár síðan Skipavík hf. í Stykkishólmi afhenti Korra hf. á Húsavík nýsmíði sem gefið var nafnið Kristbjörg ÞH 44. Ekki hef ég séð né fundið myndir frá komu hennar til heimahafnar á Húsavík en mig minnir að það hafi verið í … Halda áfram að lesa Hálf öld síðan Kristbjörgin var afhent frá Skipavík