2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Dragnótabáturinn Geir ÞH 150 frá Þórshöfn kemur hér til löndunar á Húsavík í gær. Báturinn, sem er 196 BT að stærð, var smíðaður fyrir Geir ehf. á Þórshöfn í Ósey í Hafnarfirði árið 2000. 2408. Geir ÞH 150. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2025. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150
Author: Hafþór Hreiðarsson
Njörður KÓ 7
1438. Njörður KÓ 7 ex Fiskir HF 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Njörður KÓ 7 kemur hér að landi í Sandgerði um árið en hann var smíðaður á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri 1975 og hét upphaflega Vinur SH 140. Árið 1976 fékk Vinur, sem er 30 brl. að stærð, nýja heimahöfn á Hólmavík og … Halda áfram að lesa Njörður KÓ 7
Misje Verde á Húsavik
IMO 9927433. Misje Verde. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Flutningaskipið Misje Verde er í höfn á Húsavíkur þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka. Misje Verde var smíðað á Sri Lanka árið 2023 og siglir undir norsku flaggi. Heimahöfn skipsins er Bergen. Skipið er 89,5 metra langt, breidd þess er 15,4 metrar … Halda áfram að lesa Misje Verde á Húsavik
Smári SH 221
778. Smári SH 221 ex Smári RE 59. Ljósmynd Þorgrímur Aðalgeirsson. Á þessari mynd Þorgríms Aðalgeirssonar gefur að líta Smára SH 221 í slipp en hann var upphaflega ÞH 59. Smári var smíðaður í Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar hf. árið 1949 og var 63 brl. að stærð. Hann var smíðaður fyrir Vísi hf. Húsavík sem gerði bátinn … Halda áfram að lesa Smári SH 221
Rakel María ÍS 199
2086. Rakel María ÍS 199. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rakel María ÍS 199 frá Bolungarvík siglir hér út úr höfninni í Keflavík um árið en hún var smíðuð í Noregi árið 1990. Báturinn, sem er 9,45 BT að stærð, hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina en heitir í dag Eva Björt ÍS 86 og er … Halda áfram að lesa Rakel María ÍS 199
Kap VE 4
Kap VE 4 ex Kap II VE 7. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Netabáturinn Kap VE 4 kemur hér úr róðri í síðustu viku en hún er eini báturinn sem gerður er út til netaveiða frá Vestmannaeyjum þessa vertíðina. Kap hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 var smíðaður í Stálvík árið 1967 fyrir Þórð Óskarsson hf. á Akranesi. … Halda áfram að lesa Kap VE 4
Margrét GK 33
2952. Margrét GK 33. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í gærmorgun af línubátnum Margréti GK 33 koma að landi í Sandgerði. Aflinn hjá henni var sagður rúm 10 tonn, skiptist til helminga þorskur og ýsa. Það er Nesfiskur ehf. sem gerir bátinn út en hann var smíðaður hjá Víkingbátum árið 2019. … Halda áfram að lesa Margrét GK 33
Þorsteinn í slipp á Húsavík
926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ég hef áður birt mynd af Þorsteini GK 15 í slipp á Húsavík en læt samt aðra vaða. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Falkenberg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15, þá GK 15 … Halda áfram að lesa Þorsteinn í slipp á Húsavík
Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Það voru austsuaustan 12-13 metrar og rigningarsuddi í honum eins og ljósmyndarinn orðaði það þegar Vestmannaey VE 54 kom til hafnar í Grindavík í gærmorgun. Vestmannaey var með fullfermi í þessum túr og fer aflinn að mestu til vinnslu hjá Vísi í Grindavík. Vestmannaey er í eigu … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær
Garpur RE 148
2018. Garpur RE 148 ex Garpur SH 95. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar flottu myndir af Garpi RE 148 í gær en báturinn mun stunda grásleppuveiðar frá Grindavík í vor. Garpur var smíðaður árið 1989 á Seyðisfirði og hét upphaflega Litlanes ÞH 52, eigandi Óli Þorsteinsson á Þórshöfn. Litlanes ÞH 52 var … Halda áfram að lesa Garpur RE 148









