2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Vestmannaey VE 54 kemur hér til hafnar í Grindavík í vikunni. Hún var með fullfermi, eða um 230 kör sem gera um 76 tonn. Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf. dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi. 2954. Vestmannaey VE 54. … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54
Author: Hafþór Hreiðarsson
SH Vega kom til Húsavíkur
IMO 9895252. SH Vega. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið SH Vega kom til Húsavíkur nú undir kvöld og lagðist að Bökugarði. SH Vega siglir undir fána Panama með heimahöfn í Panamaborg. Skipið var smíðað í Helsinki í Finnlandi árið 2022 og mælist 10,617 GT að stærð. Lengd þess er 113 metrar og breiddin 24 metrar. … Halda áfram að lesa SH Vega kom til Húsavíkur
Skálafell ÁR 50
100. Skálafell ÁR 50 ex Haförn SK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Skálafell ÁR 50, sem hér sést koma til hafnar í Reykjavík, fór í brotjárn árið 2014 en það var smíðað árið 1959. Smíðin fór fram í Noregi en báturinn var smíðaður fyrir Fáskrúðsfirðinga og fékk hann nafnið Hoffell SU 80. Síðar hét hann … Halda áfram að lesa Skálafell ÁR 50
Eldeyjar Boði GK 24
971. Eldeyjar Boði GK 24 ex Boði GK 24. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Eldeyjar Boði GK 24 hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 102 og var smíðaður fyrir Miðfell hf. í Hnífsdal árið 1965. Smíðin fór fram í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft í Boizenburg í A-Þýskalandi. Báturinn var sá fjórði sem kom í fyrri seríunni sem taldi tíu … Halda áfram að lesa Eldeyjar Boði GK 24
Aðalvík KE 95
971. Aðalvík KE 95 ex Eldeyjarboði GK 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aðalvík KE 95 liggur hér við bryggju í Njarðvík um árið og sjá má glitta í Njarðvík KE 93 fyrir aftan hana. Við hina bryggjuna er Ágúst Guðmundsson GK 95. Aðalvík var smíðuð í Boizenburg í Þýskalandi árið 1965 og hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir … Halda áfram að lesa Aðalvík KE 95
Jökull hélt til veiða í kvöld
2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Jökull ÞH 299 hélt til veiða frá Húsavík í kvöld eftir Sjómannadagsfrí en báturinn stundar grálúðuveiðar í net. Spáin frekar leiðinleg og kallarnir fengu norðanáttina beint í nefið. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 … Halda áfram að lesa Jökull hélt til veiða í kvöld
Villi Páls í skemmtisiglingu
7865. Villi Páls. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hér er björgunarskipið Villi Páls í skemmtisglingu í gær, Sjómannadaginn en hann er í eigu Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution
Til hamingju með daginn sjómenn
Bátar fánum prýddir í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Með þessari mynd sendi ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni Sjómannadagsins. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution.
Kristinn HU 812
2860. Kristinn HU 812 ex Kristinn SH 812. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Kristni HU 812 koma til hafnar í Grindavík í gær. Kristinn var smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði árið 2010 og er af gerðinni Cleopatra 50. Báturinn var smíðaður fyrir útgerðarfélagið Rederij Dezutter í Belgíu og hét upphaflega … Halda áfram að lesa Kristinn HU 812
Heimaey VE 1 kom til heimahafnar í morgun
3060. Heimaey VE 1 ex Pathway PD 165. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Heimaey VE 1, hið nýja uppsjávarveiðiskip Ísfélagsins, kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í morgun. Blíðskaparveður var í Vestmannaeyjum í morgun eins og þessi mynd Tryggva sýnir og ekki amaleg byrjun á Sjómannadagshelginni. Skipið, sem áður hét Pathway PD 165, er allt hið glæsilegasta … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 kom til heimahafnar í morgun









