Þórshamar GK 75

1501. Þórshamar GK 75 ex Götunes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Loðnuskipið Þórshamar GK 75 siglir hér til hafnar í Njarðvík um árið en það var Festi hf. í Grindavík sem gerði það út.

Þórshamar hét áður Götunes og keypti Festi hf. það frá Færeyjum árið 1978 og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar í Grindavík þann 3. nóvember það ár.

Skipið var byggt árið 1974 hjá Vaagland Baatbyggeri, í Vaagland, Noregi og var tveggja þilfara nótaveiðiskip, búið kæligeymum að hluta, og mældist 326 brl. að stærð. Lengd þess var 39,65 metrar og breiddin 7,93 metrar.

Haustið 1996 fór Þórshamar í miklar breytingar í Danmörku þar sem hann var m.a lengdur um fjórtán metra og sett á hann ný brú.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd