
Um þessar mundir eru 57 ár síðan Arney SH 2 var hleypt af stokkunum hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn h/f í Hafnarfirði.
Arney, sem var 132 brl. að stærð var í eigu Eyja hf. í Stykkishólmi. Hann var smíðaður eftir sömu teikningu og (244) Gullberg VE.
Árið 1973 kaupa Óskar Þórhallsson og Dagur Ingimundarson bátinn til Keflavíkur og hann verður Arney KE 50.
Norðurborg hf. á Húsavík kaupir Arney árið 1977 og nefnir Jón Sör ÞH 220. Ári síðan kaupir Frostaútgerðin á Grenivík Jón Sör sem fær nafnið Frosti II ÞH 220.
Árið 1983 var báturinn yfirbyggður á Akureyri en 1991 kaupir Rif hf. í Hrísey bátinn og nefnir Eyrúnu EA 155.
Eyrún var seld til Noregs árið 1995 og samkvæmt aba.is var báturinn notaður í ferðaþjónustu á Oslófirði þar til yfir lauk.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution