
Hér að ofan er ferjan Rusadir að manúera í höfninni í Malaga á dögunum en mér sýnist hún sigla á milli Malaga og Melilla sem er önnur tveggja sjálfstjórnarborga Spánar í Marokkó.
Rusadir, sem siglir undir fána Kýpur með heimahöfn í Limassol var smíðuð í Þýskalandi árið 2022 og hét Honfleur fyrsta árið.
Skipið er 43,130 GT að stærð, lengd þess er 187,4 metrar og breiddin 32 metrar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution