
Loðnuskipið Háberg GK 299 kemur hér til hafnar í Njarðvík um árið en það var Sigluberg hf. í Grindavík sem gerði það út.
Upphaflega Héðinn ÞH 57 sem var smíðaður í Noregi og kom nýr til Húsavíkur í júní árið 1966.
Héðinn ÞH 57 var seldur Þorbirninum hf. í Grindavík vorið 1975 og fékk hann nafnið Hrafn GK 12. Skipið var yfirbyggt árið 1977.
Það var árið 1988 sem Hrafninn fékk nafnið Háberg GK 299.
Hér er nánari fróðleikur um hann í boði Hauks Sigtryggs Valdimarssonar;
1006…. Héðinn ÞH 57. TF-SP.
IMO-nr. 6611631.
Skipasmíðastöð: Ulstein Mek. Verkst. A/S. Ulsteinvik. 1966.
Lengd: 36,86. Breidd: 8,21. Dýpt: 3,46. Brúttó: 331.
Mótor 1966 Caterpillar 800 hö. Ný vél 1980 Caterpillar 839 kw. 1141 hö.
Ný vél 2001 Caterpillar 728 kw. 990 hö.
Nöfnin sem skipið hefur borið: Héðinn ÞH 57. – Hrafn GK 12. – Háberg GK 299. – Geirfugl GK 66. – Tómas Þorvaldsson GK 10. – Krummi GK 10.
Fór í brotjárn til Belgíu 2018.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.