
Jón Steinar tók þessa frábæru myndasyrpu í vikunni þegar línuskipið Páll Jónsson GK 7 hélt til veiða frá Grindavík.
Svo segir ljósmyndarinn frá:
Það var bölvað skítviðri og smá dask á því þegar Páll Jónsson lét úr höfn, sunnan 11-12 metrar, ölduhæðin 5 metrar og þegar hann var rétt kominn út í rennu gerði svarta él með hagli og síðan mígandi rigningu. Þannig að myndirnar eru drungalegar fyrir vikið.
Ekki orð um það meir og látum myndirnar tala sínu máli.









Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution