
Hér kemur Stína frá Keldu ÍS 7 að landi á Húsavík sumarið 2010 en hún var á strandveiðum.
Báturinn hét upphaflega Ingvar ÍS 70 og var smíðaður hjá Bátastöðinni Knerri á Akranesi árið 2004. stærð.
Árið 2009 fékk báturinn nafnið Dynjandi ÍS 70 og ári síðar nafnið sem hann ber á myndinni, Stína frá Keldu.
Stína frá Keldu var seld austur á firði árið 2011 þar sem hann hélt nafninu um tíma en var svo Sædís SU 78.
Frá árinu 2012 hefur báturinn heitið Sædís NK 25 með heimahöfn á Neskaupstað.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution