Sævaldur SI 38

Sævaldur SI 38 ex Sævaldur ÞH 216. Ljósmynd Vigfús Markússon.

Strandveiðibáturinn Sævaldur SI 38 kemur hér að landi á Siglufirði fyrir skömmu.

Sævaldur hét upphaflega Gunnar HF 139 og var smíðaður í Garðarbæ árið 1986.

Á vefnum aba.is má lesa um skipasmiðinn Hörð Björnsson og bátana sem hann smíðaði.

Þar segir að báturinn hafi fengið nafnið Hafey AK 134 árið 1989 og 1991 var hann kominn á Sauðárkrók.

Þar hét hann áfram Hafey en var SK 194.

Það var árið 2003 sem hann fékk nafnið Sævaldur ÞH 216 og var fyrst um sinn með heimahöfn í Flatey á Skjálfanda. Eigandi var Guðmundur Karl Karlsson en ári síðar var báturinn kominn með heimahöfn á Húsavík.

Einar Ófeigur Magnússon keypti Sævald, sem er 6,76 BT að stærð, árið 2007 og var heimahöfnin áfram Húsavík.

Það var svo vorið 2025 sem Hkarl ehf. keypti Sævald til Siglufjarðar og hann varð Sævaldur SI 38.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd