Villi Páls dró skútuna Phywave að landi

7865. Villi Páls með skútuna Phywave í togi. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026.

Björgunarsveitin Garðar á Húsavík fékk í morgun beiðni um að aðstoða erlenda skútu sem var í nauðum norður af Tjörnesi.

Björgunarbáturinn Villi Páls fór í útkallið og tók skútuna í tog en þá hafið hafrannsóknarskipiuð Árni Friðriksson HF 200 haft hana í togi um tíma.

Jón Steinar Sæmundsson var staddur á Húsavík og sendi hann drónann á loft og náði þessum myndum af Villa Páls og skútunni Phywave nálgast Húsavík.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd