Össur og Svalur

6651. Össur ÞH 242 – 6816. Svalur EA 22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hér koma grásleppubátarnir Össur ÞH 242 og Svalur EA 22 úr Hrísey til hafnar á Húsavík vorið 2003 að mig minnir.

Össur ÞH 242 var smíðaður árið 1980 í Bátasmiðjunni Mótun fyrir Heimi Bessason á Húsavík og hér má lesa nánar um bátinn.

Svalur er af Sómagerð og smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1986. Báturinn upphaflega Sær BA 39 en hefur borið nöfnin Valdimar SH 68, Hvaley SU 62, Dodda NS 9, Svalur EA 22, Svalur EA 124 og frá árinu 2016 Svalur HU 124.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd