
Þarna vorum við búnir að skvera Skálabergið hátt og lágt eitt vorið, sennilega 1981 eða svo.
Skálaberg ÞH 244 hét upphaflega Kristjón Jónsson SH 77 frá Ólafsvík en báturinn var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1967.
Báturinn var keyptur til Húsavíkur í byrjun árs 1969 og fékk nafnið Kristbjörg ÞH 44.
Þegar ný Kristbjörg kom 1975 fékk þessi nafnið Kristbjörg II ÞH 244 og í ársbyrjun 1980 fékk báturinn nafnið Skálaberg ÞH 44.
Lesa meira um bátinn hér og hér.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution