
Á þessari mynd sem tekin var á Grandanum í dag má sjá þrjá eikarbáta sem allir hafa átt heimahöfn á Húsavík.
Hér nær eru Atlavík og Lundi en handan bryggjunnar Jón Forseti.
Jón Forseti , sem smíðaður var í Hafnarfirði, hét Svanur ÞH 100 og síðar Aron ÞH 105 þegar hann var gerður út frá Húsavík.
Atlavík hét Arný ÞH 228 og Lundi hét Svanur ÞH 100 en þeir voru báðir smíðaðir á Akureyri.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.