Hildur SH 777 við slippkantinn á Akureyri

3047. 3047. Hildur SH 777 ex Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hildur SH 777 er hér við slippkantinn á Akureyri í dag en Slippurinn Akureyri vinnur nú af krafti að smíði nýs vinnsludekks í bátinn. Báturinn sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku í fyrra hét Pia Glanz, var smíðaður í Vest­værf­tet i Hvi­desand í Dan­mörku árið … Halda áfram að lesa Hildur SH 777 við slippkantinn á Akureyri →

Friðrik Sigurðsson ÁR að draga netin

1084. Friðrik Sigurðsson ÁR 17 ex Jóhann Friðrik ÁR 17. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í dag en þær sýna Friðrik Sigurðsson ÁR 17 þar sem hann var að draga netin úti fyrir Straumsvík. Það var ekki að sjá annað á myndunum en það væri mjög gott fiskirí og fiskurinn … Halda áfram að lesa Friðrik Sigurðsson ÁR að draga netin →

Hálf öld síðan Kristbjörgin var afhent frá Skipavík

1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd úr safni Hreiðars Olgeirssonar. Um þessar mundir eru fimmtíu ár síðan Skipavík hf. í Stykkishólmi afhenti Korra hf. á Húsavík nýsmíði sem gefið var nafnið Kristbjörg ÞH 44. Ekki hef ég séð né fundið myndir frá komu hennar til heimahafnar á Húsavík en mig minnir að það hafi verið í … Halda áfram að lesa Hálf öld síðan Kristbjörgin var afhent frá Skipavík →

Varðskipið Þór

2769. Þór. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Varðskipið Þór lónaði í stutta stund utan við Grindavík í gær og flaug Jón Steinar drónanum út yfir hann. Eftir stutta stund setti hann á fulla ferð vestur fyrir Reykjanes en Jón Steinar náði þessum myndum áður. 2769. Þór. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. Með því að smella … Halda áfram að lesa Varðskipið Þór →

Pathway PD 165 kom til Vestmannaeyja með kolmuna

IMO 9763095. Pathway PD 165. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Skoska uppsjávarveiðiskipið Pathway PD 165 frá Peterhead kom til löndunar í Vestmannaeyjum í morgun en skipið var með um 2000 tonn af kolmuna. Eins og komið hefur fram á síðunni hefur Ísfélagið hf. fest kaup á skipinu sem verður afhent núna í maí. Seljandi er Lunar … Halda áfram að lesa Pathway PD 165 kom til Vestmannaeyja með kolmuna →

Dintelborg kom til Húsavíkur í dag

 IMO 9163685. Dintelborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hollenska flutningaskipið Dintelborg kom til Húsavíkur í dag með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíða hjá Van Diepen Shipyard í Waterhuizen í Hollandi árið 1999 og er 6,235 GT að stærð. Skipið er 133 metra langt og breidd þess er 14 metrar. Skipið hét upphaflega Dintelborg en árin … Halda áfram að lesa Dintelborg kom til Húsavíkur í dag →

Ísborg ÍS 250

78. Ísborg ÍS 250 ex Vatneyri BA 238. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Ísborg ÍS 250 kemur hér til hafnar á Húsavík í ágústmánuði árið 2010 en hún landaði oft hér úthafsrækju. Ísborg hét upphaflega Hafþór NK 76 og var einn af tólf austur þýskum, svokölluðum tappatogurum, sem voru smíðuð í Stralsund fyrir Íslendinga. Hafþór var … Halda áfram að lesa Ísborg ÍS 250 →