Þorsteinn í slipp á Húsavík

926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ég hef áður birt mynd af Þorsteini GK 15 í slipp á Húsavík en læt samt aðra vaða. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Fal­ken­berg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15, þá GK 15 … Halda áfram að lesa Þorsteinn í slipp á Húsavík

Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Það voru austsuaustan 12-13 metrar og rigningarsuddi í honum eins og ljósmyndarinn orðaði það þegar Vestmannaey VE 54 kom til hafnar í Grindavík í gærmorgun. Vestmannaey var með fullfermi í þessum túr og fer aflinn að mestu til vinnslu hjá Vísi í Grindavík. Vestmannaey er í eigu … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær

Jóhanna Gísladóttir landaði í Grindavík í gær

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jóhanna Gísladóttir kom til löndunar í Grindavík snemma í gærmorgun og var aflinn um 240 kör sem gerir um það bil 76 tonn. Uppistaða aflans var þorskur, ýsa og steinbítur. Vísir keypti togarann frá Vestmannaeyjum árið 2021 þar sem hann bar nafnið … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir landaði í Grindavík í gær

Ný Cleopatra 33 afhent til Englands

Maverick III E 200. Ljósmynd Trefjar 2025. Trefjar afhentu á dögunum nýjan Cleopatra 33 bát, Maverick III, til Lyme Regis í Dorset á suðurströnd Englands. Eigandi og skipstjóri bátsins er Brett Newton frá Beer og að hans sögn verður báturinn gerður út frá Lyme Regis allt árið um kring. Aðalvél bátsins er FPT C90 tengd … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 afhent til Englands

Moby Dick byrjaður að sigla

1453. Moby Dick ex Gerpir NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kemur hér að landi á Húsavík í gær en vertíðin byrjaði hjá Adda skólabróður og fjölskyldu í gær. Gentle Giants hóf einnig sína vertíð í gær en því miður rétt missti ég af Sylvíu þegar hún kom til hafnar eftir fyrstu … Halda áfram að lesa Moby Dick byrjaður að sigla

Guðbjörg Ósk SH 251

1354. Guðbjörg Ósk SH 251 ex Guðbjörg Ósk VE 151. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001 Guðbjörg Ósk SH 251 lætur hér úr höfn í Sandgerði um sumarið 2001 en báturinn var með heimahöfn í Ólafsvík. Báturinn, sem er í dag skonnortan Hildur frá Húsavík, hét upphaflega Múli ÓF 5 og var smíðaður á Akureyri árið 1974.Lesa … Halda áfram að lesa Guðbjörg Ósk SH 251

Vestmannaey á útleið frá Grindavík

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir sl. sunnudag þegar Vestmannaey VE 54 hélt til veiða að lokinni löndun í Grindavík. Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Nor­egi. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. … Halda áfram að lesa Vestmannaey á útleið frá Grindavík