Þórunn Sveinsdóttir í smíðum

2020. Þórunn Sveinsdóttir VE 401. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1991.

Hér gefur að líta Þórunni Sveinsdóttur VE 401 í smíðum hjá Slippstöðinni á Akureyri en hún var afhent sumarið 1991.

Skipið, sem var 480 BT að stærð, var smíðað fyrir Ós ehf. í Vestmannaeyjum sem gerði það út til ársins 2007.

Þá keypti Ísfélag Vestmannaeyja hf. skipið og gaf því nafnið Suðurey VE 12 sem breyttist í ÞH 9 árið 2014.

Suðurey ÞH 9 var seld úr landi árið 2018.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

3 athugasemdir á “Þórunn Sveinsdóttir í smíðum

  1. skipstjóri var pall palson stofnandi visir grindavik utg var að eg held hraðfrististöð keflavikur gerðu lika ut Askin og þar var skipstjóri Angatyr gæti verið nálægt 1957 er að skrifa æfisögu mína er orðin 85 ara Eg var sumarið eftir á sild ‘a Bergvik ke eina sem eg veit er að Báran var talin Döns blaðra sem sagt halfgerður dallur og fiskaði litið sem ekkert

    Líkar við

Færðu inn athugasemd