Eyvindur Vopni NS 70

1629. Eyvindur Vopni NS 70. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1983.

Eyvindur Vopni NS 70 er hér við bryggju á Vopnafirði haustið 1986 en myndina tók Hreiðar Olgeirsson.

var smíðaður 1983 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar h/f fyrir Kolbeinstanga h/f á Vopnafirði.

Í 9 tbl. Ægis 1983 var lýsing á Eyvindi Vopna NS 70 og sagði m.a:

19. apríl s.l. afhenti Vélsmiðja Seyðisfjarðar h.f., Seyðisfirði, nýtt 178 rúmlesta tveggja þilfara stálfiskiskip, sem hlotið hefur nafnið Eyvindur Vopni NS-70. Skipið, sem er hannað hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar er nýsmíði nr. 17 hjá stöðinni og 12. fiskiskipið sem stöðin smíðar og þriðja í röð tveggja þilfara fiskiskipa. 

Borið saman við síðustu nýsmíði stöðvarinnar, Otto Wathne NS (afhent í apríl ’81) þá er Eyvindur Vopni mjög hliðstæður að byggingarlagi og fyrir- komulagi en er talsvert stœrra skip, um 3.5 m lengra, 40 cm breiðara og 15 cm dýpra að efra þilfari. 

Aðalvél skipsins er frá öðrum framleiðanda og mun aflmeiri en í fyrrnefndu skipi, en helztu frávik á vélbúnaði að öðru leyti eru þau, að í skipinu er búnaður til svartolíubrennslu og öxulrafall. Svartolíubúnaður er nýmœli í ekki stœrra skipi og er þetta minnsta fiskiskip flotans með slíkum búnaði.
Eyvindur Vopni NS er í eigu Kolbeinstanga h.f. á Vopnafirði. 

Skipstjóri á skipinu er Sverrir Guðlaugsson og 1. vélstjóri Sveinbjörn Sigmundsson. Framkvœmdastjóri útgerðar er Pétur Olgeirsson.

Eyvindur Vopni NS 70 var gerður út frá Vopnafirði til vorsins 1995 þegar Meitillinn h/f í Þorlákshöfn keypti hann og nefndi Klæng ÁR 2.

Ári síðar var Klængur seldur til Grundarfjarðar þar sem hann fékk nafnið Farsæll SH 30.

Báturinn var seldur til Spánar árið 2022.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

1 athugasemd á “Eyvindur Vopni NS 70

Skildu eftir svar við Orri Hætta við svar