1547. Hinni ÞH 70 ex Sveinn Sveinsson BA 325. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Rækjubáturinn Hinni ÞH 70 kemur hér að landi á Húsavík þann 29. júní árið 2006. Hinni ÞH 70 hét upphaflega Neisti HU 5 og var smíðaður í Básum hf. í Hafnarfirði árið 1979. Hann er 24 brl. að stærð og heitir Draumur … Halda áfram að lesa Hinni
Year: 2024
Jón Steingrímsson RE 7
973. Jón Steimgrímsson RE 7 ex Straumnes RE 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Jón Steingrímsson RE 7 liggur hér í Dalvíkurhöfn í febrúarmánuði árið 2006. Þegar þarna var komið við sögu átti báturinn eftir um tvö ár á íslenskri skipaskrá en hann fór í pottinn árið 2008. Upphaflega hét báturinn Dagfari ÞH 40 og var … Halda áfram að lesa Jón Steingrímsson RE 7
Eyrún EA 155
1094. Eyrún EA 155 ex Fosti II ÞH 220. Ljósmynd Alfons Finnsson. Eyrún EA 155 var gerð út frá Hrísey á fyrrihluta tíunda áratugs síðustu aldar en hér er hún á vetrarvertíð á Breiðafirði. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. Hafnarfirði og lauk smíði hans árið 1969 en þá voru sjö ár síðan smíðin … Halda áfram að lesa Eyrún EA 155
Pétur Jakob SH 37
1538. Pétur Jakob SH 37 ex Kofri ÍS 41. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Pétur Jakob SH 37 hét upphaflega Tjaldur SU 115 og var smíðaður árið 1979 hjá Trésmíðaverkstæði Austurlands hf. á Fáskrúðsfirð. Báturinn, sem var 17 brl. að stærð, bar fjölmörg nöfn í gegnum tíðina en nafnið Pétur Jakon bar hann á árinu 2006. … Halda áfram að lesa Pétur Jakob SH 37
Selma
Selma ex Njörður. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þráinn Þráinsson siglir hér Selmu innan hafnar á Húsavík um árið og gott ef þetta er ekki Huginn Ágústsson bróðursonur hans sem situr út í stjór. Selma, sem er tæplega tveggja tonna súgbyrðingur úr furu og eik, var smíðuð árið 1954 af Jóhanni Sigvaldasyni bátasmið á Húsavík. Magnús Bjarnason … Halda áfram að lesa Selma
Sigurgeir Sigurðsson ÍS 533
1228. Sigurgeir Sigurðsson ÍS 533 ex Siggi gamli BA 214. Ljósmynd Hafþór Hreiððarsson. Sigurgeir Sigurðsson RE 533 liggur hér í Þorlákshafnarhöfn um árið en báturinn hét upphaflega Kolbeinn í Dal ÍS 82. Hann var smíðaður 1972 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd og var með heimahöfnin Súðavík. Báturinn, sem var 22 brl. að stærð, var … Halda áfram að lesa Sigurgeir Sigurðsson ÍS 533
Ásgeir ÞH 198
1790. Ásgeir ÞH 198 ex Kristján EA 178. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Ásgeir ÞH 198 hét upphaflega Kristján EA 178 og var smíðaður árið 1987 af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri. Eigandi Trausti Jóhannsson Akureyri. Árið 1997 keypti Þórður Ásgeirsson bátinn til Húsavíkur og nefndi Ásgeir ÞH 198. Báturinn var lengdur árið 2004 og … Halda áfram að lesa Ásgeir ÞH 198
Knútur RE 22
284. Knútur RE 22 ex Haförn GK 120. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Netabáturinn Knútur RE 22 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn á vetrarvertíð í lok síðustu aldar. Knútur hét upphaflega Anna ÓF 7, smíðuð fyrir Ólafsfirðinga í Slippstöðinni á Akureyri árið 1961. Báturinn, sem var 20 brl. að stærð, var seldur til Hafnarfjarðar árið 1984 … Halda áfram að lesa Knútur RE 22
Moby Dick kominn úr slipp
1453. Moby Dick ex Gerpir NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kom til Húsavíkur nú undir kvöld en báturinn var í slipp á Akureyri. Þar var báturinn skveraður fyrir næstu vertíð sem hefst þann 1. apríl nk. en Sjóferðir Arnars ehf. keypti bátinn frá Norðfirði sl. sumar og hóf siglingar á Skjálfanda. … Halda áfram að lesa Moby Dick kominn úr slipp
Selfoss við Bökugarðinn
IMO 9433456. Selfoss ex Shopia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Selfoss, skip Eimskipafélags Íslands hf. er á Húsavík í dag og liggur við Bökugarðinn. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langt, 21 metra breitt og 7,464 brúttótonn að stærð. Eimskip keypti skipið, sem smíðað var 2008, árið 2017 en það hét áður Sophia. Selfoss siglir undir færeyskum … Halda áfram að lesa Selfoss við Bökugarðinn









